fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Samstarfið byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 15:59

Axel og Stefanía handsala samninginn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skólahreysti og Pósturinn hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára og verður Pósturinn sérlegur styrktaraðili hraðabrautarinnar. Óhætt er að segja að hraðabrautin sé ein vinsælasta þraut keppninnar en hún reynir allt í senn á hraða, styrk og einbeitingu keppenda. Skólahreysti hefst í dag, miðvikudaginn 29. apríl.

Frá því að Skólahreysti var fyrst haldin árið 2005 hefur hún fest sig í sessi sem ein vinsælasta keppni fyrir unglinga landsins. Sex skólar af höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í fyrstu keppninni en nú eru skólarnir um 100 talsins og koma hvaðanæva að af landinu. Það voru hjónin Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir sem fengu hugmyndina að Skólahreysti og settu hana á laggirnar með það að markmiði að hvetja börn og unglinga til hreyfingar og heilbrigðs lífsstíls. Nú hafa synir þeirra þrír tekið við rekstrinum, eins og kemur fram í fréttatilkynningu.

Markmiðið að allir geti fundið gleði í hreyfingu

Axel Óskar Andrésson, framkvæmdastjóri Skólahreysti, segir að grunngildi keppninnar, að efla heilbrigðan lífsstíl með gleði, verði áfram haft að leiðarljósi þótt vissulega fylgi einhverjar áherslubreytingar nýrri kynslóð. „Það er okkur mikilvægt að hafa fengið Póstinn í hóp okkar góðu samstarfsaðila þar sem Pósturinn dreifir gleðinni um allt land og tengir saman fólk og samfélög. Okkur finnst gildi hans því falla vel að markmiðum okkar, það er að efla heilbrigðan lífsstíl, samvinnu, virðingu, jákvæðni og samfélagslega ábyrgð en umfram allt að allir geti fundið gleði í hreyfingu, óháð bakgrunni eða íþróttaiðkun.“

Stefanía Erla Óskarsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins, segir það Póstinum mikils virði að Skólahreysti hafi leitað til fyrirtækisins varðandi samstarf. „Verkefnið er jákvætt og öflugt og hefur mikilvæg áhrif á samfélagið, ekki síst þegar kemur að því að hvetja börn og unglinga til heilbrigðs lífsstíls. Heilbrigði og vellíðan starfsfólks er okkur hjá Póstinum hugleikið og því er það sönn ánægja að styðja við Skólahreysti sem byggir undir sterka og heilbrigða framtíðarkynslóð.“

Hraðabrautin reynir allt í senn á hraða, styrk og einbeitingu

Skólahreysti samanstendur af fimm greinum þar sem keppendur reyna að mestu á eigin líkamsþyngd í fjölbreyttum þrautum, þar á meðal upphífingum, armbeygjum og hraðabraut. Í brautinni þarf meðal annars að klifra upp fimm metra háan turn, lyfta steini upp á 80 sm háan kassa, sippa og klifra upp kaðal. Axel segir hraðabrautina njóta mikilla vinsælda meðal áhorfenda, enda reyni hún allt í senn á hraða, styrk og einbeitingu keppenda.

Undir þetta tekur Stefanía. „Einn helsti styrkleiki okkar er öflugt og stórt dreifikerfi en það krefst líka úthalds að viðhalda því til að geta dreift gleðinni hratt og örugglega. Segja má að dreifikerfi Póstsins sé okkar hraðabraut þar sem reynir á hraða, styrk og úthald. Keppendur Skólahreysti hafa í gegnum árin sýnt ótrúlega takta í hraðabrautinni og við hlökkum mikið til að fylgjast með í ár.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Í gær

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“