fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fréttir

Íslensk vötn ekki eins hrein og við hreykjum okkur af – Hættuleg eilífðarefni yfir mörkum í öllum sýnum

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. desember 2024 10:30

Íslenskt vatn er ekki jafn hreint og við höldum. Mynd/Imagine Art

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svokölluð eilífðarefni, eða PFAS efni, sem hafa slæm áhrif á heilsu fólks og umhverfið voru í öllum sýnum sem tekin voru í íslenskum ám og vötnum í samevrópskri rannsókn yfir heilsuverndarmörkum. Þetta er mun hærra hlutfall en fannst til dæmis í löndum sunnar og austar í álfunni.

Evrópusambandið bannaði notkun eilífðarefna árið 2019 en þau eru talin krabbameinsvaldandi og tærast ekki í umhverfinu. Þrátt fyrir það hafa slík efni fundist í nýjum snyrtivörum víða í álfunni. Baráttan gegn þeim hefur reynst erfið og áhrifanna gætir víða, meðal annars hér á landi.

Í rannsókn sem var gerð á vegum Umhverfisstofnunar Evrópusambandsins (EEA) kemur fram að eilífðarefni voru yfir mörkum í öllum sýnum sem tekin voru í yfirborðsvatni á Íslandi. Sýnatakan fór fram árin 2018 til 2022.

Sjá einnig:

Efni sem valda krabbameini og ófrjósemi fundust í snyrtivörum – Eilífðarefni í vörum Sephora og Kiko

Aðeins í tveimur öðrum löndum, Frakklandi og Belgíu, mældist útbreiðsla eilífðarefna jafn mikil og hér á landi. Í fimm löndum var magn eilífðarefna mun minna, það er yfir mörkum í undir 20 prósent tilfella. Þetta eru Spánn, Írland, Póland, Króatía og Eistland. Í þremur löndum, Búlgaríu, Lettlandi og Svartfjallalandi, mældust eilífðarefni hvergi yfir mörkum.

„Við þurfum áfram að fylgjast með og kortleggja hvar eilífðarefni finnast í miklu magni til þess að fá betri heildarmynd,“ sagði Magnus Lofsted, einn vísindamannanna sem vann rannsóknina.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts

Hvað var hinn 17 ára Tommy að gera á Íslandi? – Íris leitar aðstoðar Íslendinga vegna 60 ára gamals mannsláts
Fréttir
Í gær

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað

Ræstitækni ehf. dæmd til að greiða Andreinu miskabætur – Mörgum ásökunum hafnað
Fréttir
Í gær

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings

Niðurstöður kosningaprófs Viðskiptaráðs – Þetta eru málin sem njóta mests stuðnings
Fréttir
Í gær

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“

Sverrir Helgason flutti ræðu hjá Miðflokksmönnum – Hefur kallað regnbogafánann „alnæmisfánann“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“

Segir frétt Morgunblaðsins sýna að hún hafi reynt að koma í veg fyrir Græna gímaldið- „Hafði ég í raun ekkert formlegt umboð til að hlutast til um málið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“

Lofar Kristrúnu en getur ekki kosið Samfylkinguna í Reykjavík – „Stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri“