fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Lögmaður föðurins sendir frá sér yfirlýsingu – „Norsk yfirvöld hafa að lokinni vandlegri rannsókn úrskurðað að ásakanirnar séu tilefnislausar“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 5. apríl 2022 17:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leifur Runólfsson, lögmaður föður drengjanna þriggja sem fluttir voru til Íslands frá Noregi í einkaflugvél í síðasta mánuði, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýjustu vendinga í málinu.

Móðir drengjanna var í löngu viðtali við Eddu Falak í hlaðvarpi hennar í gær og þar bar hún föðurinn þungum sökum, meðal annars þeim að hafa ekki hirt um tannheilsu drengjanna. Dóttir hans steig fram í viðtali á sama vettvangi í dag og sakaði hann um kynferðisbrot gegn sér.

Í yfirlýsingu frá lögmannsins segir að norsk yfirvöld hafi rannsakað þessar ásakanir og talið þær tilefnislausar.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

Til fjölmiðla.

Því miður hafa efnisatriði í erfiðri og viðkvæmri forræðisdeilu foreldra sem búsettir eru í Noregi annars vegar og á Íslandi hins vegar ratað í íslenska fjölmiðla. Norskir dómstólar hafa úrskurðað um fyrirkomulag forræðis og umgengnisrétt foreldranna og íslenskir dómstólar um ólögmætt hald móður á börnum þeirra. Fyrir það hlaut hún sex mánaða fangelsisdóm.

Kastljós fjölmiðla hefur síðustu dagana einkum beinst að brottnámi drengjanna þriggja á nýjan leik. Hefur móðir þeirra stigið fram í fjölmiðlum og tjáð sig um sína hlið málsins með ítarlegum hætti. Í þeim viðtölum ber hún föður drengjanna þungum sökum. Sömuleiðis hefur elsta dóttir þeirra hjóna, 15 ára gömul, verið leidd fram með þungar ávirðingar í garð föður síns. Norsk yfirvöld hafa að lokinni vandlegri rannsókn úrskurðað að ásakanirnar séu tilefnislausar.

Faðir drengjanna og tveggja systra þeirra sem búa hjá móður sinni á Íslandi hefur af tillitsemi við börnin forðast að að segja sína hlið málsins á opinberum vettvangi. Í lengstu lög mun hann kappkosta að halda því striki. Einungis önnur hliðin í þessari deilu, þ.e. sjónarhóll móðurinnar, verður því sýnileg og vonandi er að fjölmiðlar nálgist umfjöllun sína bæði með það í huga og einnig hitt að börn eiga í hlut.

Vakin er athygli á þeirri staðreynd að réttarríki beggja viðkomandi landa teljast í fremstu röð og ekki síst þegar réttindi og velferð barna eru annars vegar. Þess vegna mun faðir barnanna, skjólstæðingur minn, hér eftir sem hingað til hlíta eftir bestu getu þeim niðurstöðum og fyrirmælum sem þar til bær yfirvöld úrskurða um.

Reykjavík 5. apríl 2022

Leifur Runólfsson

lögmaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“
Fréttir
Í gær

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu
Fréttir
Í gær

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu
Fréttir
Í gær

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“