fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Amnesty ræsti nýja herferð fyrir utan Hallgrímskirkju – Þitt nafn bjargar lífi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 19. nóvember 2021 09:00

Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær, fimmtudaginn 18. nóvember, ýtti Íslandsdeild Amnesty International úr vör Þitt nafn bjargar lífi, stærstu árlegu mannréttindaherferð í heimi. Markmiðið er að safna undirskriftum í þágu þolenda mannréttindabrota og skora á stjórnvöld víða um heim að láta tafarlaust af brotunum.

Ljósmyndari DV var á vettvangi og tók meðfylgjandi myndir. Hér fyrir neðan er fréttatilkynning Amnesty vegna málsins og neðst í fréttinni er myndband tileinkað herferðinni.

Mynd: Sigtryggur Ari

„Í fyrra sendu einstaklingar um heim allan 4,5 milljónir bréfa, korta, smáskilaboða og undirskrifta í þágu tíu þolenda mannréttindabrota. Á Íslandi söfnuðust 70.000 undirskriftir.

Í ár er einnig lögð áhersla á mál tíu þolenda. Þar á meðal er mál Chiam Ali. Hún fæddist í Los Angeles en ólst upp í Erítreu. Hún var aðeins 15 ára þegar hún hvarf sporlaust. Stjórnvöld í Erítreu eru talin hafa numið hana á brott í hefndaraðgerð gegn föður hennar, sem grunaður var um aðild að valdaránstilraun. Síðan eru liðin 9 ár. Erítrea er alræmd fyrir að halda fólki föngnu í gámum neðanjarðar þar sem það þarf að þola miklar öfgar í hita og kulda.

Óttast er að Chiam sé haldið fanginni í slíku neðanjarðarfangelsi. Í gámi sem grafinn er í jörð. Til að minna á þessa skelfilegu prísund höfum við komið fyrir gulum gámi á Skólavörðuholti, þar sem lesa má um mál hennar og fleiri þolenda mannréttindabrota. Hægt verður að ganga inn í gáminn, fá þar tilfinningu fyrir aðstæðum — auk þess sem hægt verður að skrifa þar undir ákall til stjórnvalda til að krefja þau um að láta af mannréttindabrotunum.

Mynd: Sigtryggur Ari

Íslendingar búa við fjölmörg forréttindi. Það veldur því að mál sem þessi geta virst okkur fjarlæg og jafnvel óviðkomandi. Í herferðinni í ár viljum við vekja almenning til umhugsunar um hvernig hending ein getur staðið á milli þess að fá að njóta mannréttinda og ekki. Til dæmis í hvaða landi þú fæðist eða af hvaða uppruna þú ert. Stundum þarf ekki annað en að vera á röngum stað á röngum tíma.

Lag átaksins í ár er hið þjóðþekkta „Rangur maður“, sem hljómar undir átakanlegu myndefni af mannréttindabrotum. Um leið setjum við sakleysislegan texta í algerlega nýtt samhengi og færum þennan fjarlæga veruleika nær okkur. Spurningin í textanum „Af hverju get ég ekki lifað eðlilegu lífi?“ fær algerlega nýja merkingu.

Þitt nafn bjargar lífi er sönnun þess að í krafti fjöldans er unnt að umturna lífi fólks sem sætir grófum mannréttindabrotum. Samtakamátturinn hefur stuðlað að frelsun samviskufanga, náðun dauðadæmdra fanga, mannúðlegri löggjöf og stöðvun pyndinga.

Næstu daga og vikur munum við halda þessari mikilvægu baráttu áfram og safna undirskriftum, aðallega á netinu, en einnig á almenningsstöðum. Til að minna á átakið verða ýmsar áberandi byggingar baðaðar gulu ljósi sem er litur Amnesty International og táknar vonarljós þolenda mannréttindabrota.

Hægt er að kynna sér málefnin og skrifa undir á www.amnesty.is.

Það kann að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að hunsa eina undirskrift en þegar milljónir undirskrifta berast er ómögulegt að líta undan.

 Það er aldrei rangur tími fyrir mannréttindi.“

 

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Hide picture