fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Íslenskur kattareigandi ráðalaus vegna nikótínfíknar kattar síns – „Hvað get ég gert annað en að loka dýrið inni?“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 11. nóvember 2021 13:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskur kattareigandi, Kristjana, leitaði ráða inn á Facebookhópnum Kattarsamfélagið í kjölfar þess að köttur hennar, Ichigo – oftast kallaður Kisi, fór að venja sig á að naga sígarettustubba sem hann finnur á víðavangi. Velti hún fyrir sér hvort að kötturinn gæti verið haldinn nikótínfíkn og hvernig væri best að takast á við þann hvimleiða ávana.

Kristjana leitaði ráða annara kattaeigenda.

Nikótínfíkn hjá köttum. Kötturinn minn gerir í því að naga filtera af sígarettum sem hann finnur í nágrenninu. (Reykir enginn á heimilinu) Hann hefur verið einn af þessum sem veiðir allt annað en mýs og fugla. Hann er að koma stoltur heim með vettlinga, dömubindi, plastpoka, hrúgu af laufum og fleira. En uppá síðkastið er hann endalaust með sígarettur. Feldurinn hans er að verða ljótur og hann er að rífa heilu klærnar af sér á kattaklórunni og tengi ég það við fíknina hans. Hvað get ég gert annað en að loka dýrið inni?“

Í athugasemdum er henni bent á að nikótín geti verið stórhættulegt köttum og að best væri að fara með Kisa til dýralæknis. Aðrir benda á að mögulega sé best að afgirða fyrir hann afdrep á svölum eða í garði svo hann komist aðeins út, en þó ekki á svæði þar sem sígarettustubbum hefur verið hent.

Kristjana þakkar ráðin og segir að Kisi sé kominn í meðferð.

„Takk allir. Hann er kominn í meðferð og fær ekki að fara út. Heyri í dýralækni í dag til að skoða hann.“

Það er vel þekkt í dag að sígarettur og sígarettureykur er ekki hollur okkur mannfólkinu. Því er ekki erfitt að sjá fyrir sér hvaða áhrif slíkt hefur á gæludýr á borð við ketti sem eru töluvert minni en mannfólkið.

Nikótín getur valdið alvarlegri eitrun hjá dýrum. Þó svo kettir séu að leika sér með aðeins stubb af sígarettu eða filterinn úr slíkum þá er enn hægt að finna eitthvað magn af nikótíni í þeim sem svo berst inn í líkama kattar ef hann borðar stubbinn, eða nagar hann.

Einkenni nikótíneitrunar hjá köttum geta verið:

  • skjálfti
  • litlir augasteinar
  • aukin munnvatnsframleiðsla og slef
  • ofheyrn og ofsjónir
  • æsingur
  • uppköst og niðurgangur
  • vöðvakippir og jafnvel flog í alvarlegum tilvikum
  • hraður hjartsláttur
  • hár blóðþrýstingur

Sem betur fer er talið að gæludýrum, líkt og mannfólki þyki sígarettur ekkert sérlega bragðgóðar en forvitnir og leikglaðir kettir geta þó litið á sígarettustubba sem upplagt leikfang, nagdót eða fórn til að færa eigendum sínum.  Kettir gætu líka velt sér upp úr sígarettustubbum og innbyrt svo nikótín úr þeim þegar þeir þrífa feldinn sinn. Sérstaklega geta kettir sótt í mentól sígarettur þar sem mentól getur framkallað svipuð einkenni hjá þeim og kattarmynta (e. catnip). Nikótín er ávanabindandi og það getur líka átt við um ketti.

Því er ágætt að hafa þetta á bak við eyrað þegar kemur að því að losa sig við leyfar sígarettureykinga, nikótínpúða eða annað þvíumlíkt. Því það eru litlar verur á ferð, sem geta orðið fyrir eitrun.  Eins geta óbeinar reykingar haft neikvæð áhrif á heilsu katta og jafnvel valdið krabbameini.

Í samtali við DV segir eigandi Kisa, Kristjana, að kisi sé ögn sár að komast ekki út en annars hress.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“