fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Helgi sagði sig úr stjórn Ferðafélags Íslands í morgun

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 11. nóvember 2021 12:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Jóhannesson, fyrrverandi yfirlögfræðingur hjá Landsvirkjun, hefur sagt sig úr stjórn Ferðafélags Íslands. Frá þessu greinir Vísir. Þar kemur fram að Helgi hafi sagt sig úr félaginu í morgun og hefur nafn hans nú þegar verið fjarlægt af heimasíðu félagsins.

Stundin greindi frá því í morgun að Helgi hafi hætt störfum hjá Landsvirkjun nýlega í kjölfar þess að hann var formlega áminntur fyrir hegðun gagnvart samstarfskonu sem hann hafi meðal annars sagt vera með „lesbíuklippingu„, strokið á henni kinnina án hennar samþykkis og boðið henni að klípa sig í rassinn.

Vísir hefur eftir Önnu Dóru Sæþórsdóttur, forseta Ferðafélags Íslands, að málið sé ofsalega leiðinlegt fyrir alla aðila og að nýr stjórnarmaður verði kosinn á næsta aðalfundi félagsins á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“

Sandra stígur fram: „Ég hef líka séð afleiðingarnar þegar samfélagið bregst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin

Lýður tapaði máli gegn Kópavogi – Fríkirkjan Kefas verður ekki rifin
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“

Pawel bendir á hræsni Einars – „Miðflokkurinn er mjög hissa að fjölmiðlar vilji ræða þetta stefnumál þeirra“