Í semptember á þessu ári voru félagasamtökin Graðar gellur skráðar í fyrirtækjaskrá Skattsins. Félagasamtökin vöktu nokkra athygli á samfélagsmiðlinum Twitter í gær, líklega vegna nafnsins á samtökunum.
En hvað gera félagasamtökin Graðar gellur? Líklega er best að spyrja stjórnarformann samtakanna, Guðrúnu Björk Bjarnadóttur, framkvæmdastjóri STEFs og lögmann að því:
„Heyrðu, Graðar gellur eru félagasamtök sem að núna eru í 26 konur og við erum sem sagt áhugakonur um ræktun íslenska hestsins og vorum að kaupa graðhest. Þetta snýst um graðhesta,“ segir Guðrún í samtali við blaðamann þegar hann forvitnaðist um störf félagasamtakanna.
„Okkur finnst þetta líka ótrúlega fyndið,“ sagði Guðrún svo þegar blaðamaður sagðist hafa gaman að nafninu í tengslum við störf samtakanna.
Ljóst er að félagasamtökin stefna langt en þau eru nú þegar búin að kaupa hest til ræktunar. „Jú, við erum bara búin að festa kaup á fola frá Skagafirði sem er mjög fallegur og við berum miklar vonir við. Nú stendur frammi hjá okkur, þetta er mjög lýðræðislegt félag, kosning um nafnið á folanum því hann er enn nafnlaus.“
Guðrún segir að sér og hinum 25 konunum sem eru í samtökunum hafi gaman að þessu. „Okkur finnst þetta mjög skemmtilegt. Við erum eiginlega núna bara að bíða eftir því að Losti eða Blush hafi samband við okkur og bjóði okkur samstarf, það væri mjög við hæfi og við bíðum mjög spennt eftir því samtali.“
Meðlimir samtakanna eru mismiklir sérfræðingar í íslenska hestinum. „Við erum allar áhugakonur um íslenska hestinn, sumar vita lítið, aðrar eru atvinnukonur í þessu og allt þar á milli.“