Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir, starfsmaður þingflokks Framsóknarflokksins, greindi frá því að starfsmenn stjórnmálaflokka væru vaktir um miðjar nætur og áreittir með símtölum frá óprúttnum aðilum, taldi hún að um þrjár konur væri að ræða.
Hún greinir nú frá því að málið hafi hlotið farsælan endi. Sú manneskja sem hafi staðið fyrir hringingunum hafi beðist afsökunar og séð að sér.
„Mér hefur borist afsökunarbeiðni, manneskjan hefur séð að sér og viðurkennt hversu fáránleg þessi framkoma er og ætlar að ræða við vinkonur sínar. Ég kann að meta þegar fólk hefur þroska til þess að viðurkenna mistök, við höfðum öll einhvern tímann gert mistök. Vonandi getum við bara öll unnið saman að búa til betra samfélag, það er svo miklu skemmtilegra,“ skrifar Sonja á Facebook.