fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

„Þetta er eins og eiturlyf, maður verður háður þessu“

Tómas Valgeirsson
Mánudaginn 14. október 2019 18:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Kína er gullnáma fyrir uppistand. Allt við þetta land er ein stór kómedía. Sagan, landið, samfélagið. Þetta er svo mikið kaos.“

Þetta segir Helgi Steinar Gunnlaugsson, en hann gegnir störfum sem túlkur á daginn og uppistandari á kvöldin. Hann talar mandarín-kínversku reiprennandi og hefur sjálfur jafnvel flutt uppistand á því máli, þótt hann haldi sig að mestu við enskuna. Helgi bjó í Kína í fimm ár og lauk námi með MA-gráðu í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Peking.

 

Uppistandarinn er nýr gestur Föstudagsþáttarins Fókus og segir hann þar frá gráum svæðum húmors, umdeildum atvikum, tengslum sínum við samfélagsmiðla og ekki síst afskiptum kínverskra yfirvalda.

Helgi segir ekkert umræðuefni vera tabú að sínu mati, sérstaklega í ljósi umræðna um hvort fólk sé almennt viðkvæmara í dag fyrir beittu gríni en áður. „Við búum á mjög áhugaverðum tíma með stjórnmál um allan heim. Þetta er skrítinn tími til að vera uppistandari, en samt skemmtilegur líka. En því viðkvæmara sem málefnið er, því fyndnara þarf grínið að vera,“ segir hann.

 

„Ekkert-má“ tíminn

Helgi segir tilfinninguna að vera á sviði og ná til fólksins í salnum vera engu lík. „Ef þú hefur gaman af að „killa“ uppi á sviði og stíga síðan niður. Þetta er ólýsanleg tilfinning. Þetta verður eins og eiturlyf, maður verður háður þessu, þessari viðurkenningarþörf,” segir hann hress.

„Margir misskilja uppistand nú til dags og halda að þetta sé einhver TED-umræða með manneskju sem reynir bara að vera grimm,“ segir Helgi og hefur einföld skilaboð til allra sem hafa áhuga á því að spreyta sig í uppistandi: „Aldrei byrja sem „sjokk-kómík,“ segir hann og brýnir fyrir að húmor sem er á tæpum mörkum þurfi mikla æfingu.

„Þú verður í rauninni að æfa þig í nokkur ár áður en þú ert farinn að kunna á línuna. Við búum svolítið á þessum tíma þar sem „ekkert-má“, en svo hugsa ég að þetta er ekki meirihluti samfélagsins, heldur bara hávær hópur á netinu. Fyrir suma er mikið sport að móðgast fyrir hönd annarra.“

 

Eins og veira

Þá rifjar Helgi upp uppistandssýningu í Úkraínu á síðasta ári og þar voru tvær ölvaðar rússneskar stúlkur í salnum að öskra á hann. „„Þegiðu! Farðu af sviðinu! Þú ert ekki fyndinn!“, sögðu þær. Ég spurði hvort þeim líkaði ekki sýningin mín og þær neituðu. Þá svaraði ég: Auðvitað ekki, þið eruð Rússar. Það eina sem ykkur finnst gaman er að berja samkynhneigða, segir Helgi.

„Af því að Rússar eru á steinöldinni þegar kemur að réttindum samkynhneigðra var þetta frekar auðvelt skot á þá. En í salnum situr blaðamaður Grapevine, strunsar út og segir á Facebook að gagnkynhneigður uppistandari hafi verið að grínast um að drepa samkynhneigt fólk í Rússlandi. Ég vissi ekki hvar ég átti að byrja, þetta var bara lygi.

Það voru margir lokaðir Facebook-hópar sem fréttu af þessu. Ég sýndi vídeóklippuna úr sýningunni á netinu og það kæfði þetta aðeins. Hefði ég ekki stoppað þetta af, þá hefði það áfram dreifst út að ég væri hómófóbískur. Þetta er samt það sem er svo hættulegt. Þegar eitthvað svona fer á netið og er ekki tékkað þá heldur þetta áfram eins og veira. Tæknin er orðin þannig að ein lygi getur spreðast út á örfáum mínútum.“

 

Viðvörun eftir skemmtun hjá Sjálfstæðisflokknum

Fyrir nokkrum árum fékk Helgi viðvörun frá Facebook vegna myndbands sem hann birti á samfélagsmiðlum. Í myndbandinu sést hann skemmta á kvöldi á vegum Sjálfstæðisflokksins og spilar Bjarni Benediktsson stóra rullu í brandaranum.

„Þetta var frekar skemmtilegt. Ég þekki marga í Sjálfstæðisflokknum, hef oft giggað fyrir þá og þetta er allt besta fólk, en þetta er þegar Sjóður 9-dótið var allt í gangi. Ég segi einhvern brandara um að við Bjarni Ben séum svipaðar persónur; að hann líti á 52 milljónir á sama hátt og ég lít á næsta dag eftir „þjóðhátíð: ég man ekki alveg hvað gerðist og vil helst ekki tala um það.““

Á meðan Helgi flytur brandarann stígur Bjarni Ben inn í salinn. Grínarinn lék sér að viðbrögðum Bjarna í myndbandinu sem hann birti við góðar viðtökur. Nokkrum vikum eftir að Helgi hleður upp myndbandinu á Facebook kemst hann ekki inn á aðganginn sinn og fær skýra viðvörun frá miðlinum.

„Mér var sagt að ég færi í ævilangt Facebook-bann ef ég setti þetta vídeó inn aftur. Ástæðan var sögð vera að þetta hefði skemmt fyrir Sjálfstæðisflokknum, af þeim innan flokksins sem lagði inn kvörtunina,“ segir hann.

 

Samsæri á sviði í Peking

Í tengslum við umræðuna um umdeilt grín segist Helgi seint gleyma atviki sem átti sér stað í Peking sumarið 2015. Þá var hann yfirheyrður af lögreglunni vegna gruns um að óæskileg ummæli um kínversk stjórnvöld væru látin falla á uppistandskvöldi sem hann skipulagði. Þeir félagar hans þurftu að hætta við sýninguna þegar hún var aðeins hálfnuð.

„Það var rosalegt verðbréfahrun vikuna á undan og alltaf þegar það gerist verður ríkisstjórnin rosalega stíf,“ segir Helgi. „Það er tvennt sem gefur ríkisstjórninni í Kína lögmeti, þjóðernishyggjan og efnahagurinn, og þegar annað hrynur þarf hitt að gefa í.“

Helgi segist hafa gert grín að Kína á þessu kvöldi og líkti meðal annars ríkisstjórninni við keisaraveldið úr Stjörnustríðsmyndunum og sagði það vera tilvalda hugmynd að nýrri kvikmynd í seríunni.
„Allt svona grín er viðkvæmt og þeir hjá ríkisstjórninni eru með þá ímynd að Vesturlöndin séu í herferð að láta Kína illa út,“ segir Helgi.

„Áður en við vissum af voru komnir óeinkennisklæddir lögreglumenn. Við erum allir beðnir um skilríki á staðnum og yfirheyrðir. Þetta snerist minna um grínið og meira um að sýna útlendingnum hver ræður, svona í ljósi ástandsins sem var í gangi.  Ríkisstjórnin fær ekki að gefa leyfi fyrir uppistandi, þá halda þeir að sjálfsögðu að öll svona kvöld séu hluti af einhverju samsæri.“

 

Skuggaleg þróun

Helgi var búsettur í Kína þegar hann ákvað að spreyta sig fyrst í gríninu á sviði og segir hann að landið muni ávallt eiga sérstakan sess í sínu hjarta. Hann veltir þó mikið fyrir sér þróuninni og uppganginum þar um þessar mundir og segir útlitið ekki gott.

„Þetta er rosalega stolt þjóð, en þessi tortryggni þeirra gagnvart Vesturlöndunum á sér alveg uppruna,“ segir Helgi og vísar í ópíumstríðin og svonefndu Öld niðurlægingarinnar, þegar Vesturlöndin hertóku Kína. „Þeir fengu versta díl mannkynssögunnar, stuttu eftir það ráðast Japanir inn og það er hreinlega fokkað í þeim í heila öld. Svo loksins þegar Maó tekur yfir og Kína verður kommúnistaríki er aftur sameinað. En ég hef áhyggjur af ástandinu núna.“

Þegar Xi Jinping tók við sem forseti Kína árið 2012 vonuðust margir, að sögn Helga, til að hann væri mikill endurbótasinni, með loforð um betri lýðræðisumbætur. Raunin reyndist þá vera öfug. „Kína virðist bara vera að hoppa um borð í þessa sömu lest og flestir aðrir í heiminum, hvort sem það er Vladimir Pútín, Rodrigo Duterte eða Donald Trump,“ segir Helgi. „Nú er búið að herða meira á netinu, fjölmiðlafrelsi og maður veit ekkert hvar þetta endar. Það er smá hroki kominn í þetta þjóðarstolt. Þetta er svolítið skuggalegt,“ segir Helgi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna

Hver fer á Bessastaði? – Þetta eru makar forsetaframbjóðendanna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan

Bankarnir í Þýskalandi hata hana – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar

Aðdáendur Taylor Swift halda ekki vatni eftir nýjasta uppátæki hennar