fbpx
Þriðjudagur 19.maí 2026
Fréttir

Ofur-Baldur dæmdur fyrir sjö kíló: Vitni óttaðist „raunverulega krimma“ og „vondu mennina“

Hjálmar Friðriksson
Mánudaginn 4. júní 2018 10:40

Kannabisplöntur í rætkun. Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Sigurðarson, oft kallaður Ofur-Baldur, hefur verið dæmdur í fimm mánaðar fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot. Baldur er tónlistarmaður og fyrrverandi formaður stjórnar Sniglanna. Hann var tekinn með tæplega sjö kíló af kannabis í ræktun á Þorlákshöfn.

Málið má rekja til þess að lögregla hafði afskipti af vegfaranda við eftirlit á Eyrarbakkavegi árið 2016. Við leit í bíl hans fundust fíkniefni og sagði maðurinn þá að hann væri að koma úr ræktun í Þorlákshöfn. Þar hefði hann verið ásamt Baldri við að klippa niður ræktun. Lögregla fór á vettvang og fann þar búnað til ræktunar, efnisleifar og kannabisefni, samtals 6.839,37 grömm.

Fyrrnefndur maður var ekki ákærður í málinu og bar vitni fyrir dómi. Þar sagðist hann hafa lent í samkrulli við menn, „raunverulega krimma“ sem maðurinn vildi ekki nefna á nafn. Þessir krimmar hafi verið með ræktun og beðið hann um að henda fyrir sig dálitlu af kannabisrusli. Hann hafi neitað þeirri bón en þá var honum hótað öllu illu.

„Neitaði vitnið að ræða það frekar hvernig það kom til að mennirnir, sem vitnið nefndi „vondu mennina“ komu fíkniefnum fyrir í bifreið hans. Lögregla hafi síðan stöðvað vitnið og hann ekki þorað að benda á hinu réttu aðila, „vondu mennina“ enda hræddur við þá. Hafi þá vitnið bent á ákærða Baldur Sigurðarson, til að koma sjálfum sér undan sök,“ segir í dómi. Dómari taldi þessa lýsingu ekki trúverðuga.

Baldur neitaði sök og sagði fyrir dómi að hann hafi vissulega haft húsnæðið á leigu. Þar hafi hann ætlað að geyma búslóð og vera með tómataræktun. „Ákærði kvaðst þó ekki hafa lokið verkinu áður en lögregla leitaði í húsnæðinu. Búnaðinn, sem ákærði kvaðst hafa ætlað að nota til tómataræktunarinnar og lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, sagði hann að hluta áður hafa verið notaðan við kannabisrækt annars staðar, sem ákærði hlaut dóm fyrir á sínum tíma og hafi hann átt eftir að þrífa og sópa upp lauf og jurtaafganga,“ segir í dómi.

Dómari komast að þeirri niðurstöðu að það væri hafið yfir skynsamlegan vafa að Baldur hafi gerst sekur um brotin. Baldur hefur alls átta sinnum hlotið dóm, þar af einu sinni fyrir fíkniefnalagabrot og vegna kynferðisbrots. Því var dómur hans ekki skilorðsbundinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“

Fjárhagur skiptinema í rúst vegna rispaðrar bílfelgu – „Eins og risastórt íslenskt tröll hafi kramið sálu mína“
Fréttir
Í gær

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“

Eigandi Ormsson hefur áhyggjur af íslensku samfélagi: „Tregðan er farin að sjást og merkin eru skýr“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrstu tölur frá Akranesi, Seltjarnarnesi, Suðurnesjabæ og Ísafirði

Fyrstu tölur frá Akranesi, Seltjarnarnesi, Suðurnesjabæ og Ísafirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“

Bæjarstjóri skaut föstum skotum á Kristrúnu eftir að fyrstu tölur bárust – „Það tókst ekki“