Fókus

Raggi Bjarna varð 84 ára – Hann átti ekki von á þessum móttökum

Mynd

Söngvarinn og þjóðargersemin Ragnar Bjarnason var 84 ára á laugardaginn. Mætti hann galvaskur upp í Borgarleikhús til að taka þátt í sýningunni Ellý.

En starfsfólk Borgarleikhússins ákvað að koma Ragga skemmtilega á óvart, var afmælissöngurinn sunginn fyrir hann og tóku gestir sýningarinnar undir. Og á eftir var afmælisveisla eins og títt er á slíkum dögum.