fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Kristín Hrefna hvetur til hugleiðslu: „Maður þarf ekkert að vera á heilagleikahraðlestinni“

Íris Hauksdóttir
Laugardaginn 11. janúar 2020 18:00

Kristín Hrefna Halldórsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Flow, segist finna fyrir miklum áhuga á hugleiðslu. Hún tók nýverið til starfa innan fyrirtækisins en Flow framleiðir hugleiðsluhugbúnað fyrir sýndarveruleika og snjallsíma. Þrjátíu íslensk fyrirtæki hafa nú þegar gerst áskrifendur að fyrirtækjaþjónustu Flow sem býður aðgang að nútíma hugleiðsluaðferðum í gegnum hátækni sýndarveruleikans og hugleiðsluvinnustofur.

„Það eru ótrúlega spennandi tímar framundan hjá Flow. Við erum með frábærar vörur sem eru að hjálpa fyrirtækjum um allt land að byggja upp jákvæða vinnustaðamenningu sem dregur fram öll þau jákvæðu áhrif sem nútíma hugleiðsluaðferðir geta veitt manni,“ segir Kristín Hrefna, en hún var ráðin til fyrirtækisins í fyrra og sinnir nú stöðu framkvæmdastjóra. Áður vann hún hjá viðskiptaþróunarteymi Meniga og var sérfræðingur í viðskiptagreiningu hjá Valitor ásamt því að sinna stöðu framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún er með MBA frá Háskóla Íslands og BA í stjórnmálafræði frá sama skóla.

„Það langar svo marga að læra að hugleiða því flestir vita að það gerir manni gott en það getur verið erfitt að glíma við huga sem vill toga mann út um allt. Mér finnst ágætt að hugsa um þetta á þann veg að við séum að reyna að vera í núinu til þess að hafa meira vinnsluminni til þess að beita akkúrat núna. Ef ég er sífellt að hugsa um það sem ég hefði átt að gera áðan eða í gær eða hvað ég á eftir að gera hef ég miklu minna vinnsluminni til þess að beita í því samtali sem ég er í eða í því verkefni sem ég er að sinna. Ég hugsa að flestir kannist við það að hlusta ekki á viðmælanda sinn með fullri athygli, því þeir eru að hugsa um hvað þeir ættu að segja næst eða hvað þeir ætla að borða á eftir. Það er ágætt að líta á hugleiðslu sem æfingu til þess að vera í núinu og til þess að geta beitt því vinnsluminni sem maður getur haft aðgang að. Það er hægt að æfa sig í því með alls konar leiðum og Flow, sem er hugleiðsluhugbúnaður, er ein þeirra leiða sem hægt er að fara.“

Veikindi herja á fólk óháð fjárhag

Kristín Hrefna segir hugleiðslu frábæra leið til þess að takast á við alls konar vandamál sem herja á fólk úti um allan heim. Þunglyndi, kvíði og streita eru oft erfið veikindi sem fólk glímir við, óháð því hversu mikla peninga það á, hvort það er menntað eða ómenntað, býr í Vesturbænum eða úti í heimi.

„Ég held að það sé ágætt að hugsa um hugleiðslu með aðeins einfaldari og kannski ekki eins leyndardómsfullum hætti og margir gera. Þetta er fyrst og fremst æfing og því betri sem maður verður í því að hugleiða því betri verður maður í því að nota þessa tækni í lífinu. Maður þarf ekkert að vera á heilagleikahraðlestinni, ganga um með talnabönd eða vera einhver jógasérfræðingur. Þetta er spurning um að finna réttar æfingar og gera þær reglulega, svo einfalt er það, en það getur verið erfitt að halda sig við efnið því hugurinn er svo duglegur við að reika í burtu. Þess vegna er mjög gott að nota hjálpartæki eins og hugbúnaðinn frá Flow.“

Sem dæmi nefnir Kristín Hrefna svokallaða sýndarveruleikavöru sem veitir fólki aðgang að stórkostlegu myndefni úr íslenskri náttúru. „Já, þetta er allt saman unnið af verðlaunakvikmyndagerðarmönnunum, Árni og Kinski, en þeir gerðu meðal annars myndbönd fyrir Sigur Rós og Snow Patrol. Þeir búa til listaverk úr hverri hugleiðslu þegar þeir tvinna saman myndefnið, tónlistina og leiða notendur inn í annan heim með þaulreyndum hugleiðslukennurum. Þetta er okkar leið til að leyfa fólki að njóta þeirra eftirsóttu áhrifa sem hugleiðsla getur dregið fram á aðeins fjórum mínútum,“ segir Kristín Hrefna að lokum, en fyrir áhugasama er vert að taka fram að fyrirtækið Flow var stofnað árið 2016 og vann Gulleggið, frumkvöðlakeppni Icelandic Startups árið 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu