fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fókus

Grínistar grilla þrítuga Bylgju

Einvala lið uppistandara mun níða skóinn hver af öðrum á Húrra

Ritstjórn DV
Laugardaginn 20. maí 2017 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við gerðum þetta í fyrra þegar Hugleikur átti afmæli og það heppnaðist mjög vel. Við uppgötvuðum eitthvað sadó-masó í okkur og töluðum um að gera þetta aftur. Svo uppgötvaði ég að ég á þrítugsafmæli núna svo við slógum til,“ segir uppistandarinn Bylgja Babýlons sem á ekki von á góðu á skemmtistaðnum Húrra á laugardagskvöld þar sem hópur einvala grínista og uppistandara mun keppast við að grilla hver annan með gríni.

Um er að ræða svokallað „roast“ að erlendri fyrirmynd þar sem frægir grínistar koma saman og bókstaflega grilla hver annan, segja brandara á kostnað hver annars og þá einna helst heiðursgestsins hverju sinni. Það verður hlutskipti Bylgju að bera mestan þungann að þessu sinni.

„Það verður líklega mest níðst á mér,“ segir Bylgja sem kvíðir þó engu og lofar taumlausri skemmtun fyrir áhorfendur, þótt þeir grínistar sem þræddir verða upp á grillteininn á Húrra gætu átt von á neðanbeltishöggum.

„Við þekkjumst misvel en við sem þekkjumst gætum farið meira út í eitthvað persónulegra. Dregið einhverjar beinagrindur úr skápnum,“ segir Bylgja en auk hennar verða Hugleikur Dagsson, Jonathan Duffy, Saga Garðarsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Þórdís Nadia Semichat, Jóhannes Ingi Torfason og Kamilla Einarsdóttir í grillveislunni.

Aðgangur er ókeypis og hefst Þrítugs-Róst Bylgju Babýlons klukkan 21 á laugardagskvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Kom að pabba sínum látnum: „Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á mér”

Kom að pabba sínum látnum: „Átti lengi erfitt með að ná myndinni úr hausnum á mér”
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi

Hefur rannsakað ástarsambönd í 25 ár: Þetta er lykillinn að langlífu hjónabandi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu

Johnny Depp segist hafa endað sem prófmál MeToo-hreyfingarinnar – Hann sér ekki eftir neinu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni

Sigmundur fékk áhugaverða mynd senda frá konunni sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“

Forsprakki Manowar segir Íslendingum að brýna stálið – „Búist við tónleikum þar sem jörðin undir fótum ykkar skelfur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag

Svona lítur stjarnan úr einu umtalaðasta tónlistarmyndbandi sögunnar út í dag