fbpx
Miðvikudagur 10.desember 2025
Fókus

Ráð fyrrverandi flugfreyju – Gerðu alltaf þetta þegar þú ferð á hótel

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 8. nóvember 2025 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi flugfreyjan Katherine Kamalani gefur góð ráð um hvað þú átt að gera þegar þú ferð á hótel, hún fer yfir allt frá öryggi til hreinlætis.

Myndbandið vakti mikla athygli og voru margir ánægðir með hana, en sumir hafa líka gagnrýnt hana. Einhverjir segja þetta vera almenna skynsemi. Svo segja aðrir hana vera vænisjúka.

Hér eru ráðin átta:

Aldrei segja herbergisnúmerið þitt upphátt. Bara til öryggis ef það er einhver nálægt sem þú vilt ekki að viti hvar þú gistir.

Vertu alltaf viss um að það sé enginn á bak við þig þegar þú ferð inn í herbergið.

Athugaðu hvort einhver sé inni í herberginu, kíktu á bak við gluggatjöldin og undir rúmið.

Læstu hurðinni og passaðu alltaf að læsa báðum lásunum.

Vertu viss um að rúmið sé ekki með lús. Skoðaðu dýnuna.

Taktu alla skrautpúða og rúmteppi. „Það er aldrei þrifið,“ segir hún.

Aldrei setja töskuna þína ofan á rúmið. „Taskan hefur farið í gegnum flugvöllinn og hún er ógeðsleg,“ segir Katherine.

Ef þú ert ekki með ísskáp, settu matinn þinn í ísfötuna.

Horfðu á myndbandið hér að neðan.

@katkamalaniHOTEL HACKS from a flight attendant! ##hotelhack ##flightattendantlife ##hoteltips ##travelhack ##fyp ##traveltips♬ original sound – katkamalani

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókaspjall: Ráðgátur og óvænt endalok

Bókaspjall: Ráðgátur og óvænt endalok
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ömurlegt að í landi sem heitir Ísland, að það sé ekki hægt að iðka ísíþróttir“

„Ömurlegt að í landi sem heitir Ísland, að það sé ekki hægt að iðka ísíþróttir“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Faðir Meghan Markle í krísu – Læknar þurftu að fjarlægja annan fótlegginn

Faðir Meghan Markle í krísu – Læknar þurftu að fjarlægja annan fótlegginn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hin helga kvöl – Hörkuspennandi glæpaflétta

Hin helga kvöl – Hörkuspennandi glæpaflétta