Það var mikið um dýrðir í Laugardalshöll á sunnudag þegar danskeppni WOW Reykjavík International Games fór fram.
Um er að ræða alþjóðlegt íþróttamót sem var sett síðastliðinn fimmtudag en mótinu lýkur svo næstkomandi sunnudag. Keppt er í tuttugu og einni íþróttagrein og má þar nefna sund, lyftingar, karate, skvass, júdó, skylmingar, keilu, fimleika og frjálsar íþróttir svo nokkur dæmi séu tekin. Margt af besta og efnilegasta dansfólki landsins var saman komið í Laugardalshöll á sunnudag þegar danskeppnin fór fram. Ljósmyndari DV myndaði það sem fyrir augu bar.
Góð saman María Tinna og Gylfi Már saman á dansgólfinu í standard dönsum.
Öflugt teymi Ásgeir Bolli Kristinsson, sem stundum er kenndur við verslunina Sautján, sést hér ásamt dönsurunum Kristni Þór Sigurðssyni og Lilju Rún Gísladóttur. Kristinn er barnabarn Ásgeirs. Kristinn og Lilja lenti í 2. sæti í fullorðinsflokki í suðuramerískum dönsum og hafa verið að gera það gott utan landsteinanna að undanförnu.
Lét sig ekki vanta Hanna Rún Bazev Óladóttir lét sig að sjálfsögðu ekki vanta um helgina. Hanna Rún er einn þekktasti dansari Íslands en hún ákvað að gerast atvinnumaður í íþróttinni undir lok síðasta árs. Hún var því ekki gjaldgeng í keppnina um helgina.
Heimsmeistarar Polina Oddr og Pétur Gunnarsson unnu í suðuramerískum dönsum um helgina í flokki fullorðinna. Þau urðu heimsmeistarar í flokki 21 árs og yngri í desember síðastliðnum og urðu þar með fyrsta íslenska parið til að hljóta heimsmeistaratitil í latíndönsum.
Brá á leik Borgarfulltrúinn S. Björn Blöndal brá á leik þegar verðlaun voru afhent á sunnudag. Hér sést hann sýna hvað hann getur í júdó.