fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Hlaðborð veitinga á Lindarbraut

Hvetja maraþonhlaupara til dáða

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 26. ágúst 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sú hefð hefur skapast við Lindarbrautina á Seltjarnarnesi að íbúar götunnar skreyta hús sín og garða fyrir Reykjavíkurmaraþonið og efna til morgunverðarhlaðborðs til að hvetja maraþonhlauparana til dáða.

Það eru meira en tíu ár síðan nokkrir nágrannar tóku sig saman í að skreyta kvöldið fyrir hlaup og bjóða gestum og gangandi í morgunverðarhlaðborð og meðal þeirra eru hjónin Sjöfn Þórðardóttir og Lárus B. Lárusson og Magnea Ólöf Guðjónsdóttir og Halldór Kjartansson Björnsson sem bjuggu hlið við hlið í götunni. Þegar Magnea og Halldór fluttu yfir í aðra götu á Nesinu voru Sjöfn og Lárus svo heppin að systir Sjafnar, Þorbjörg, flutti í götuna og þessari skemmtilegu hefð var haldið við og vel það.

„Magnea og Halldór fluttu síðar aftur á Lindarbrautina og fögnuðu því að geta haldið áfram að hvetja þessar hetjur til dáða,“ segir Sjöfn Þórðardóttir.

Dóra Guðmundsdóttir, Guðrún Edda Haraldsdóttir, Eva Ingimarsdóttir og Sjöfn Þórðardóttir voru í sólskinsskapi.
Fjórar hressar konur á Nesinu Dóra Guðmundsdóttir, Guðrún Edda Haraldsdóttir, Eva Ingimarsdóttir og Sjöfn Þórðardóttir voru í sólskinsskapi.
Lárus B. Lárusson, Magnea Guðjónsdóttir, Sjöfn Þórðardóttir og Þorbjörg Pétursdóttir raða á borðið.
Raðað á hlaðborðið Lárus B. Lárusson, Magnea Guðjónsdóttir, Sjöfn Þórðardóttir og Þorbjörg Pétursdóttir raða á borðið.

Síðastliðin ár hefur þessi hefð vaxið og dafnað og á miðri Lindarbrautinni er Dýri ávallt með hljómsveit og tekur á móti sveittum maraþonhlaupurunum með ljúfum tónum.

„Það er náttúrlega langskemmtilegast að búa við Lindarbrautina þegar Reykjavíkurmaraþonið er annars vegar. Hefðin er að bjóða vinum og vandamönnum að koma í hvatningar- og klappliðið og stemningin er ólýsanleg,“ segir Sjöfn.

„Það er ómetanlegt að sjá allt þetta fólk, sem allt er að stefna að sama markmiðinu, að styrkja góð málefni og láta gott af sér leiða. Því er svo gaman að hvetja það til dáða og bjóða því upp á eðalveitingar fyrir þeirra framlag.“

Hlaðborð af veitingum

Og þvílíkar kræsingar sem lagðar eru á borð fyrir gestina, bakaðar eru bollakökur og þær skreyttar í tilefni dagsins, boðið er upp á ferska ávexti, osta, hráskinkur, pylsur, pönnukökur, brauð og pestó, kornflexgotterí og margt, margt fleira, svo fátt sé nefnt. Bollakökurnar eru allra vinsælastar hjá hlaupurunum, en í þetta skiptið voru bökuð um 300 stykki. Melónurnar eru afar vinsælar og sérstaklega vinsæll munnbiti hjá þyrstum maraþonhlaupurunum. Umfram allt er boðið upp á ískalt Prosecco, vatn, ávaxtasafa eða léttan bjór.

Gleðin ríkti hjá klappliðinu.
Gleðið ríkjandi Gleðin ríkti hjá klappliðinu.

„Erlendu gestirnir eru sérstaklega hrifnir og eru agndofa af hrifningu þegar þeir sjá hlaðborðið og taka fjöldann allan af myndum,“ segir Sjöfn.

Í ár skelltu systurnar Sjöfn og Þorbjörg sér í PIPPU, fengu sér þar blöðrur, veifur og annað skemmtilegt til að skreyta pallinn og götumyndina fyrir hlaupið.

„Það er líka frábært að vera í hvatningar- og klappliðinu og hvetja þessar hetjur áfram til dáða og gleðja þær fyrir þeirra flotta framtak.“

Hjónin Þröstur Þór og Kristín Björk voru alsæl með klappliðið.
Hæstánægð með hlaðborð Hjónin Þröstur Þór og Kristín Björk voru alsæl með klappliðið.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari og Gunnar Karl voru á hraðferð og rosalega ánægðir með hvatningarliðið. Söfnuðu þeir áheitum fyrir Reykjadal, en þar eru starfræktar sumarbúðir fyrir börn sem glíma við alls kyns fötlun. Þeir voru hluti af fjögurra manna hóp sem nefnist „Vinir Gunnars Karls.“
Vinir Gunnars Karls Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari og Gunnar Karl voru á hraðferð og rosalega ánægðir með hvatningarliðið. Söfnuðu þeir áheitum fyrir Reykjadal, en þar eru starfræktar sumarbúðir fyrir börn sem glíma við alls kyns fötlun. Þeir voru hluti af fjögurra manna hóp sem nefnist „Vinir Gunnars Karls.“
Pétur Ívarsson og Boss-gengi hans hlaupa framhjá, klædd jakkafötum, skyrtu og bindi. Þeir hlupu heilt maraþon til styrktar Einstökum börnum.
Boss-gengið Pétur Ívarsson og Boss-gengi hans hlaupa framhjá, klædd jakkafötum, skyrtu og bindi. Þeir hlupu heilt maraþon til styrktar Einstökum börnum.
Söngvarinn Valdimar safnaði fyrir Blár apríl-styrktarfélag barna með einhverfu.
Nælir sér í veitingar Söngvarinn Valdimar safnaði fyrir Blár apríl-styrktarfélag barna með einhverfu.
Sunna Valdís Sigurðardóttir, ættingjar og vinir, kláruðu 10 kílómetra til styrktar AHC samtökunum. Sunna er eini Íslendingurinn sem greinst hefur með AHC, Alternating  Hem­ip­leg­ia of Child­hood, sem er sjald­gæf­ur tauga­sjúk­dóm­ur.
Til styrktar Sunnu Sunna Valdís Sigurðardóttir, ættingjar og vinir, kláruðu 10 kílómetra til styrktar AHC samtökunum. Sunna er eini Íslendingurinn sem greinst hefur með AHC, Alternating Hem­ip­leg­ia of Child­hood, sem er sjald­gæf­ur tauga­sjúk­dóm­ur.
Sumir létu sér nægja að horfa girndaraugum á hlaðborðið.
Hlaupið framhjá hlaðborði Sumir létu sér nægja að horfa girndaraugum á hlaðborðið.
Vatnsmelónurnar voru vinsælar.
Krækt í eina melónu Vatnsmelónurnar voru vinsælar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“