Undirbúningur hafinn fyrir fegurðarsamkeppnina
Þátttakendur í keppninni um Miss Universe Iceland 2017 eru nú byrjaðir í undirbúningi fyrir keppnina, sem haldin verður mánudaginn 25. september næstkomandi í Gamla bíói. Í ár taka 20 stúlkur víðs vegar að af landinu þátt.
Umboðsmaður keppninnar hér á landi er athafnakonan Manuela Ósk Harðardóttir og Bandaríkjamaðurinn Jorge Esteban. Þau kynntust fyrir nokkrum árum þegar vinkona hans leigði íbúð móður Manuelu í gegnum Airbnb. „Jorge hefur starfað í kringum fegurðarsamkeppnir í fjölmörg ár og hann setti sig í samband við mig eftir þessa ábendingu frá vinkonu hans,“ segir Manuela. Síðar lentu þau saman í flugi til Bandaríkjanna og létu færa sig saman. „Þá ræddum um tækifæri á þessum vettvangi hér heima og í kjölfarið ákváðum við að sækja um Miss Universe fyrir Ísland og fengum, þannig að árið í ár er í annað sinn sem við höldum keppnina.“
Manuela þekkir sjálf vel heim fegurðarsamkeppna en hún vann Ungfrú Ísland árið 2002. Í fyrra var það Hildur María Leifsdóttir, Miss Glacier Lagoon, sem bar sigur úr býtum í Miss Universe Iceland og tók hún þátt í aðalkeppninni á Filippseyjum í janúar 2017. Í ár taka 20 stúlkur þátt og fjórar þeirra endurtaka leikinn frá því í fyrra.
„Þær fjórar sem tóku þátt í fyrra, höfðu forgang inn aftur,“ segir Manuela. „Í ár verður ný dómnefnd, allt erlendir gestir eins og í fyrra.“
Það er Aníta Ísey Jónsdóttir sem sér um sviðsmynd líkt og í fyrra og má búast við spennandi keppni í september. Birta mun fjalla nánar um keppnina og alla keppendur eftir því sem nær dregur.