Nanna Rögnvaldardóttir er landsþekktur matgæðingur. Slíkir þurfa vitanlega að eiga góð áhöld, tæki og tól, sem þörf er á við matseldina. Flestir láta sér líklega nægja að arka í húsbúnaðarverslanir í næsta nágrenni sé þörf á að kaupa slíkt. Nanna hins vegar lætur ekki haf og lönd stöðva sig. Á dögunum átti Nanna stórafmæli, en hún varð sextug 20. mars síðastliðinn. Hún ákvað að gefa sjálfri sér glæsilega pottjárnspotta í ýmsum litum. Þrjá fékk hún senda frá Bandaríkjunum en þann fjórða gerði hún sér ferð út til London og sótti. Sá er líka einkar glæsilegur og vel ferðarinnar virði.