

„Það kom sér vel að vera góðkunningi lögreglunnar,“ segir rithöfundurinn Stefán Máni sem var handtekinn á Blönduósi fyrir að fara yfir á rauðu ljósi. Stefán var á leið frá Akureyri til höfuðborgarinnar ásamt útgefanda sínum Tómasi Hermannssyni. Tómas og Stefán tjáðu sig um afskipti lögreglunnar við Vísi sem einnig birtir tvær myndir af rithöfundinum í lögreglubílnum. Stefán Máni hefur einbeitt sér að sakamálasögum síðustu ár og nýverið kom út bókin Svarti galdur þar sem lögreglumaðurinn Hörður Grímsson er í aðalhlutverki.
Sjá einnig: lamdi menn og skemmdist af klámi
Þegar DV hafði samband við Tómas var hann tekinn við stýrinu en í samtali við Vísi hafði hann þetta að segja:
„Auðvitað var hann að keyra. Hann fór yfir á rauðu. Það voru framkvæmdir þarna við Blönduós.“ Bætti Tómas við að Stefán Máni hefði játað en hann greitt sektina fyrir rithöfundinn.