

„Þessi punktur að það vanti fleiri konur á þjóðhátíð bara því það vanti konur finnst mér bara til þess gerður að gera minna úr konum sem listamönnum. Konur þurfa enga kynjakvóta sem listamenn,“ segir tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson. Bent hefur verið á það að aðeins þrjár konur séu á meðal þeirra 45 flytjenda sem tilkynnt hefur verið um á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Ýmsir hafa verið til að gagnrýna fyrirkomulagið en Sóley Tómasdóttir, forseti Borgarstjórnar í Reykjavík sagði í frétt á Bleikt:
„Forhertasta feðraveldisapparat allra tíma kynnir enn eina karadagskrána.“ Bætti Sóley við:
„Og í guðanna bænum farið ekki að reyna að tengja þetta einhverri nauðgunarumræðu, það er svo þreytandi.“
Taka ýmsir undir með Sóley og segir Jakob Frímann Magnússon meðlimur Stuðmanna:
„Já, engar tístandi kvenpíslir í þessa hrútaveislu.“
Hörður Orri Grettisson formaður Þjóðhátíðarnefndar tjáir sig um málið við Ríkisútvarpið og segir að ekki sé um meðvitaða ákvörðun að ræða. Hátíðin sé fyrst og fremst haldin til fjáröflunar fyrir ÍBV og hljómsveitir valdar með það í huga til að selja miða. Ekki sé sest niður með það í huga ár hvert að útiloka kvenflytjendur.
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð fjallar um málið á Facebook síðu sinni. Ingó segir:
„Þær sem koma með góð lög verða bókaðar víða eins og aðrir listamenn. Ekki mun ég nöldra ef vinsælustu artistarnir á þjóðhátíð eftir 3 ár verða 70 prósent konur. Í gegnum söguna hafa fleiri strákar verið Í hljómsveitum hér Á landi. Þess vegna eru væntanlega oftar strákar að spila á svona hátíðum.“
Þá segir Ingólfur að tónlistarkonur eigi ekki að njóta forréttinda einungis vegna þess að þær séu konur. Það geri minna úr þeim sem listamönnum.
„Þetta er óvinsæl skoðun og kannski þykir þetta karlremba en ég sé þetta svona. Komið frekar með gagnrýni hvaða tónlistarkonur vantar, á grundvelli þess sem þær hafa fram að færa.“
Tónlistarkonan Greta Salóme tekur til máls á Facebook-síðu Ingólfs og segir:
„Hef reyndar ekki séð eina einustu gagnrýni um að það að það vanti kvenflytjendur á þjóðhátíð bara vegna þess að þær eru með kvenkyns kynfæri heldur einmitt að vegna þess að konur eru að gera svo flott stöff sé skrýtið að hlutföllin séu eins og þau eru. Ef konur þurfa enga aðstoð af hverju eru þær þá yfirleitt hangandi í 1% -10% þegar kemur að flytjendum, vinsældarlistum, tónlistarverðlaunum, steftekjum og fleiru? Það endurspeglar engan veginn hvað eru margar konur í bransanum heldur umhverfið sem þeirra bíður sem mér finnst einmitt gera lítið úr þeim. Flottast finnst mér reyndar þegar aðstoðin og gagnrýnin kemur frá þeirra karlkollegum í bransanum eins og frá Unnsteini Manúel en það er bara ég.“
Ingólfur svarar Gretu og segir að líkleg ástæða sé að færri konur starfa í tónlist. Þá sé eina markmið Þjóðhátíðarnefndar að selja miða.
„Ef ekki þá er annaðhvort minni eftirspurn eftir þeim eða eitthvað risastórt samsæri i gangi hjá fjölmiðlum. Sem ég efast um.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrirkomulag er gagnrýnt. Svipuð umræða átti sér stað fyrir ári síðan en þá voru flytjendur um 70, þar af voru 4 flytjendur kvenkyns.
Greta Salóme svarar:
„Það er sennilega rétt hjá þér, minni eftirspurn eftir konum enda selja þær ekki nógu marga miða, geta ekki samið Þjóðhátíðarlög og allt þar fram eftir götunum. Best að bíða bara og láta þetta rétta sig af sjálft sem gerist sennilega í kringum 2100. Get ekki beðið!“