

Hafþór Júlíus Björnsson er til umfjöllunar á BBC. Þar eru birt skilaboð sem hann sendir einum besta knattspyrnumanni heims, Christiano Ronaldo, sem leikur fyrir Portúgal. En Portúgal er einmitt með Íslandi í riðli í Evrópukeppninni í knattspyrnu sem fram fer í Frakklandi núna seinna í mánuðinum.
Hafþór sem er einn sterkasti maður heims og hefur leikið í Game of Thrones er með skilaboð til Ronaldo, aðalstjörnu Portúgalska liðsins. Skilaboðin má sjá hér fyrir neðan og ættu að vekja ugg hjá stórstjörnunni.
,,Ég heiti Hafþór Júlíus Björnsson. Ég er frá Íslandi. Ég er fjallið í Game of Thrones. Ég er með skilaboð til Christano Ronaldo. Ég veit að þú ert að spila á móti Íslandi í fyrsta leiknum á Evrópumótinu. Ef þú vogar þér að skora á móti Íslandi , þá mun ég finna þig og kremja á þér höfuðið eins og ég gerði við Red Viper.“