

Íslendingar eru hrifnastir af finnska laginu í Eurovision í ár. Danska og sænska lagið eru einnig vinsæl en ísraelska lagið kemst ekki á blað.
Þetta kemur fram í kosningu OGAE, samtaka aðdáendaklúbba Eurovision. En hér á Íslandi heitir klúbburinn FÁSES.
Klúbbarnir kjósa bestu lögin í aðdraganda keppninnar og í dag voru kunngjörðar niðurstöður frá Íslandi, Möltu, Frakklandi, Tyrklandi og Andorra.
Niðurstöðurnar frá Íslandi eru þær að Finnar fá 12 stig, Danir 10, Svíar 8, Kýpurmenn 7, Ástralir 6, Albanir 5, Frakkar 4, Ítalir 3, Maltverjar 2 og Grikkir 1.
Finnska lagið heitir Liekinheitin og er flutt af dúettnum Lampenius og Parkkonen.
Þetta er mjög langt frá því að vera róttæk spá því að Finnum er spáð sigri í Eurovision í ár samkvæmt veðbönkum. Eru líkurnar á sigri þeirra taldar vera 31 prósent en Danir, Frakkar og Grikkir eru með í kringum 10 prósent vinningslíkur.
Það sem vekur helst athygli er að Ísrael er hvergi að finna á blaði hjá íslenska aðdáendaklúbbnum en ísraelska lagið þykir á meðal þeirra sigurstranglegustu. Hjá veðbönkum er það í sjötta sæti með 6 prósent vinningslíkur.
Eins og flestir vita sniðganga Íslendingar Eurovision keppnina í ár vegna þátttöku Ísraels og hernaðar þeirra á Gasa ströndinni. Það gera einnig Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar.