

Stórleikarinn Val Kilmer lést fyrir rétt rúmu ári síðan en þökk sé tækninni mun honum bregða fyrir í kvikmyndinni As Deep as the Grave. Leikstjóri og framleiðandi myndarinnar, bræðurnir Coerte og John Voorhees, fengu nefnilega leyfi frá aðstandendum leikarans til að reisa hann upp frá dauðum með aðstoð gervigreindar.
Stikla fyrir myndina hefur verið birt og þar má sjá ungan Val Kilmer segja: „Ekki óttast þá dauðu og ekki óttast mig.“
Þrátt fyrir þessa tilvitnun úr myndinni hefur stiklan skotið mörgum skelk í bringu, enda er notkun gervigreindar mikið deilumál í Hollywood og spilaði stórt hlutverk í verkföllunum árið 2023 sem urðu til þess að kvikmyndaframleiðsla meira og minna stöðvaðist.
As Deep as the Grave fjallar um fornleifafræðingana Ann og Earl Morris, en sá síðarnefndi er talinn vera fyrirmynd sjálfs Indiana Jones. Undirbúningur kvikmyndarinnar var hafinn áður en faraldur COVID skall á og hafði Kilmer verið valinn í eitt hlutverkið. COVID setti strik í reikninginn og myndinni var frestað. Kilmer veiktist svo af krabbameini og þurfti að hætta við hlutverk sitt. Nú heyra sóttvarnaaðgerðir sögunni til og auk þess hefur tækninni fleygt fram á miklum hraða. Voorhees-bræður sáu sér því leik á borði og leituðu til aðstandenda Kilmers til að kanna hvort ekki mætti hafa gervigreindar-Kilmer í myndinni. Börn Kilmers samþykktu þetta og veittu auk þess aðgengi að stóru safni myndbanda af leikaranum. Þar með hafði gervigreindin nóg efni til að endurlífga Kilmer heitinn fyrir stóra skjáinn.
Leikarinn Jackson Rathbone segist var eiga eitt aukatekið orð yfir þessu útspili. Hann minnir á verkfallið árið 2023 og segist samhryggjast börnum Kilmers en á sama tíma velta því fyrir sér hvort þau séu í raun að syrgja hann.
„Eruð þið að syrgja hann, eða eruð þið að notfæra ykkur andlát föður ykkar í gróðaskyni? Þetta er það ógeðslegasta sem ég hef nokkru sinni séð. Farið til fjandans, þið eruð viðbjóðsleg.“
Hey @sagaftra – about that strike we had..
You owe us an explanation.
This is cool? Wtf
And dude .. Mercedes .. I’m sorry for your loss, but this move begs the question.. are you sorry for your loss? Or are you capitalizing on your father’s death for your own financial… https://t.co/f4V4YBQRrZ
— Jackson Rathbone (@JacksonRathbone) April 15, 2026