fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fókus

Klámstjarnan varanlega fötluð og fjölskyldan fer í mál

Fókus
Sunnudaginn 9. febrúar 2025 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðstandendur klámmyndaleikkonunnar fyrrverandi Emily Willis hafa stefnt Summit Malibu-meðferðarheimilinu í Kaliforníu fyrir alvarlega vanrækslu sem leiddi til þess að Willis glímir nú við varanlega fötlun.

Emily Willis, sem heitir réttu nafni Litzy Lara Banuelos og er 25 ára, var lögð inn á meðferðarheimilið þann 27. janúar í fyrra vegna ketamínfíknar.

Fljótlega eftir að hún var lögð inn á heimilið fór heilsu hennar að hraka og var í fyrstu talið að um fráhvarfseinkenni væri að ræða.

Í stefnu fjölskyldunnar kemur fram að starfsfólki hafi mátt vera ljóst að hún glímdi við alvarleg veikindi og þeir hefðu átt að senda hana á sjúkrahús. Það var hins vegar ekki gert.

Það var svo þann 4. febrúar að starfsmaður kom að Emily meðvitundarlausri í herbergi hennar og hófust endurlífgunartilraunir um leið. Þær báru loks árangur en ekki fyrr en Emily hafði orðið fyrir varanlegum heilaskaða.

Telja læknar að hún hafi fengið hjartaáfall með fyrrgreindum afleiðingum, og áður en að því kom hafi líffæri hennar verið farin að gefa sig. Með réttri meðhöndlun á sjúkrahúsi hefði verið mögulegt að snúa þeirri þróun við, að mati lögmanna hennar.

Í stefnunni segir meðal annars: „Veikindi hennar voru hunsuð þar til það varð of seint og núna er líf hennar breytt til frambúðar.“ Í stefnunni er bent á að hún hafi skilað hreinum fíkniefnaprófum á meðan á meðferðinni stóð og því hafi hún ekki verið í virkri neyslu á meðferðarheimilinu eins og haldið hefur verið fram.

Lögmaður Willis og fjölskyldu hennar segir við breska vefmiðilinn Daily Star að Emily sé nú í umsjá móður sinnar. Hún geti ekki tjáð sig og ekki hreyft sig og það sé alls óvíst hvort einhver breyting verði á því á næstu misserum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan

Kyntákn tíunda áratugarins hraðspólar kynlífssenur nútímans – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 6 dögum

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt

Barnastjarnan úr Little Miss Sunshine orðin þrítug – lífið eftir frægðina var erfitt
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk

Þetta eru lögin sem kemur fólki á óvart að séu íslensk
Fókus
Fyrir 1 viku

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“

Patrekur ákvað að hætta að drekka þegar hann sá sjálfan sig: „Ég gat ekki horft á þetta. Mér fannst þetta svo hrikalegt“