fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024
Fókus

Friðrik Dór segir umboðsmanninn korter í sálfræðing – „Passar að hausinn á mér sé rétt skrúfaður á“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. febrúar 2024 16:30

Friðrik Dór Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Friðrik Dór Jónsson, einn afkastamesti tónlistarmaður landsins, er gestur Einars Bárðarsonar í hlaðvarpi hans Einmitt. Friðrik var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur og þeir félagar fara í gegnum plötuna nánast lag fyrir lag og ræða hana frá öllum endum. Þeir ræða hvernig hann semur tónlistana og hvernig hann velur samstarfsaðila og viðfangsefnin. Lífið sem er ljúft alveg á enda þess og hvernig Friðrik vill sjá heiminn þegar hann skilur við og allt þar á milli. Þá ræða þeir feril Friðriks sem hefur verið einkar farsæll þrátt fyrir hæðir og lægðir alveg frá fyrsta laginu hans Hlið við hlið að síðasta stóra verkefni Friðriks sem er popp tilraunaverkefnið Iceguys.

Lögin á Mæður er persónulegri

Platan heitir Mæður eins og kemur fram hér að ofan og kemur út í framhaldi af plötunni Dætur. “Lögin á Mæður eru lög sem fóru ekki á Dætur af því að þau voru of „fullorðin” og pössuðu ekki alveg inn í hljóðheiminn á Dætur.” Lögin fjalla meðal annars um hvernig Friðrik óskar sér að skilja við og kveðja, þegar sá tími kemur. Þá er fjallað um ríkidæmið í okkar nánustu og samböndin okkar við þau. “Platan átti fyrst að heita “Blóm fyrir mömmu” en þegar ég er í göngutúrum með stelpurnum mínum í Setbergshrauninu þá fara þær oftar en ekki í það að tína blóm fyrir mömmu,” segir Friðrik og bætir við að hann hannaði umslagið sjálfur sem er enn ein rósin í hnappagat Friðriks. “En svo seinna í ferlinu fannst mér það bara passa að hún fengi nafnið Mæður.”

Síðasta kveðjan yrkisefni

Talið berst að lagi á plötunni sem heitir Að sumri til en sá texti er ansi persónulegur en þar er Friðrik að tala um þegar hann kveður lífið, sæll lífdaga. Einar spyr hann út í þetta yrkisefni sem ekki margir popptónlistarmenn taki sér sem yrkisefni og Friðrik er fljótur til svara: “Nei ekki eitt af þessum hressu lögum,” segir hann og skellir upp úr og útskýrir svo aðdraganda og tilurð lagsins sem spratt út frá því að hann hafði spilað nokkrum sinnum með stuttu millibili í jarðarför hjá fólki sem kvatt hafði sælt og satt lífdaga sem hafi orðið honum umhugsunarefni.

Síðasta skipti breytti öllu

Í aðdraganda Söngvakeppninnar árið 2015 var Friðrik alls óviss um framtíð sína í tónlist. Hann og Lísa höfðu eignast sitt fyrsta barn og framtíðarvæntingar hans til sjálfs síns voru að breytast. „Stop Wait Go strákarnir höfðu verið beðnir að senda inn lag í keppnina og ég reyndar líka. Við ákváðum að slá saman í eitt lag sem varð “Síðasta skipti” lagið var að mestu tilbúið en ég kom aðeins að textanum.” Einar segir vera nokkuð skýr umbreyting á ferli Friðriks í kjölfar úrslitana. “Mesta blessun þessa lags og líklega mín var að það vann ekki,” segir Friðrik. “Þá er ekki hægt að valda þjóðinni neinum vonbrigðum,” skýtur Einar inn og Friðrik er sammála því. “Maður missir af því tækifæri.”

Ákvað að syngja meira og hleypa fólki nær sér

Friðrik segist hafa rætt þessa ákvörðun við sitt nánasta samstarfsfólk og Mána Pétursson umboðsmann sinn. “Ég tók svo ákvörðun að fara í keppnina og um leið að fara bara “all in” í hana og hleypa fólki nær mér og sýna meira hver ég er og í framhaldinu tók ég líka ákvörðun um að syngja meira. Fyrri lögin mín eru meira flæði og rapp ef maður vill kalla það rapp. En lögin eftir það eru meira sönglög heldur en hitt.“

Máni er korter í sálfræðing

Talið berst að samstarfi Friðriks og Mána Péturssonar umboðsmanns Friðriks. Þeir hafa unnið saman í mjög langan tíma og átt farsælt samstarf. “Samstarf okkar er miklu meira en bara einhver umboðsmaður. Máni er markþjálfi og sponsor hjá AA þannig þannig að það er gott að hafa hann nálægt og hann passar að hausinn á mér sé rétt skrúfaður á. Peppar mann þegar maður þarf á því að halda en gagnrýnir líka,” segir Friðrik og bætir við: “Hann er korter í einhvern sálfræðing líka”.

Ykkur vantaði ekki beint eitthvað að gera?

Talið berst, eðlilega, að nýjasta ævintýri Friðriks og félaga hans í Ice Guys. “Hvernig varð það til, ykkur vantaði ekki beint eitthvað að gera?” spyr Einar. “Þetta snerist í alvörunni bara um það, eigum við ekki bara að gera eitthvað fyndið, skemmtilegt, jákvætt og gaman. Af því eins og þú segir, það vantaði engan okkar neitt að gera,” aegir Friðrik. Hann lýsir því líka að hugmyndin sé upprunalega Jóns bróður hans og tekur líka af allan vafa um það að mömmu þeirra þyki ekki vænna um sig heldur en Jón bróður sinn. Það hafi hún meira segja ítrekað á Facebook þegar þættirnir komu út.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Anna Gundís segir þetta vera algengustu mistökin við að taka sjálfsmynd

Anna Gundís segir þetta vera algengustu mistökin við að taka sjálfsmynd
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Um tíma átti ég erfitt með að kaupa mér maskara því ég eyddi svo miklum pening í maníu“

„Um tíma átti ég erfitt með að kaupa mér maskara því ég eyddi svo miklum pening í maníu“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sextug kona sigraði í fegurðarsamkeppni

Sextug kona sigraði í fegurðarsamkeppni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn

Sigríður Dögg í óheppilegum árekstri við hunangsflugu – Á lífi en særð eftir atganginn
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég hefði getað misst allt sem ég átti og hún bjargaði mér þegar hún kom í heiminn“

„Ég hefði getað misst allt sem ég átti og hún bjargaði mér þegar hún kom í heiminn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn

Peter Andre gæti fengið sekt vegna þess að hann nefnir ekki dóttur sína – Íslendingar hafa rýmri rétt til að trassa að nefna börn