fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fókus

Guðni þreytti Guðlaugssund

Fókus
Þriðjudaginn 12. mars 2024 17:30

Forseti Íslands ásamt þeim sem þreyttu Guðlaugssund í Laugardalslaug. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands þreytti fyrr í dag svokallað Guðlaugssund en það er haldið á hverju ári um þetta leyti til að minnast þess þegar Guðlaugur Friðþórsson synti til lands í Vestmannaeyjum um þriggja sjómílna leið (rúmlega 5,5 kílómetrar), 11. mars 1984, þegar báturinn Hellisey VE sökk en Guðlaugur komst einn áhafnarmeðlima lífs af.

Guðni segir svo frá í færslu á Facebook-síðu forsetaembættisins:

„Guðlaugssund var þreytt í dag. Fólk syndir þá allt að sex kílómetrum til að halda á lofti því afreki Guðlaugs Friðþórssonar að synda til lands eftir að báturinn Hellisey VE 503 sökk um þrjár sjómílur austur af Stórhöfða á Heimaey hinn 11. mars 1984. Hinir skipverjarnir fjórir fórust, þeir Engilbert Eiðsson, Hjörtur R. Jónsson, Pétur Sigurðsson og Valur Smári Geirsson. Sundið er einnig haldið til minningar um þá og aðra sem hlotið hafa vota gröf hér við land.“

„Ári eftir hið hörmulega sjóslys fór Guðlaugssund fyrst fram í Sundlaug Vestmannaeyja og frá 2005 hefur það einnig verið haldið á höfuðborgarsvæðinu. Mér hlotnaðist sá heiður að vera boðin þátttaka í Laugardalslaug í morgun. Einvalalið stakk sér þá til sunds og margir lögðu alla leiðina að baki, sex kílómetra hver. Sum okkar lögðu styttri vegalengd að baki og sjálfur synti ég einn kílómetra. Ég þakka þeim sem hafa skipulagt þennan fallega minningarviðburð í áranna rás.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda