Samfélagsmiðlastjörnurnar Sunneva Einarsdóttir og Patrekur Jaime eru nýjustu „ráðherrar“ landsins en þau eru andlit vitundarvakningar sem miðuð er að nemendum á framhaldsskólaaldri og í efri bekkjum grunnskóla. Skilaboðin eru send út í nafni vandamálaráðuneytisins – glænýs „ráðuneytis“ sem stofnað var til að bregðast við þeim meinta vanda að ungt fólk vandi almennt ekki mál sitt eða pæli mikið í íslenskri tungu.
View this post on Instagram
Lykilskilaboðin eru þau að tungumálið tilheyrir okkur öllum – og það má leika sér með það. Hlutverk vandamálaráðuneytisins er að hvetja ungt fólk til að nota íslensku og skapa efni á alls konar íslensku.
Til að vekja athygli á málefninu hefur vandamálaráðuneytið skipulagt samkeppni um gerð efnis á íslensku fyrir samfélagsmiðla þar sem vegleg verðlaun verða í boði. Dómnefnd velur einn sigurvegara sem hlýtur 300 þúsund krónur í verðlaun, auk þess sem fjöldi aukaverðlauna verða veitt.
Vandamálaráðherrarnir skora á þig að búa til efni á íslensku fyrir samfélagsmiðla.
Viltu búa til stuttmynd, semja söngtexta eða gera förðunarkennslumyndband? Þú gætir líka búið til nýyrði, samið sögu eða búið til orðalistaverk. Þú mátt meira að segja kenna hamstrinum þínum að fara með ljóð. Hvað sem er — svo lengi sem það er á íslensku.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur skólasamfélagið til að nýta þessa vitundarvakningu og leggjast á árarnar með íslenskunni. Það er til dæmis hægt með því að:
– ræða við nemendur um mikilvægi þess að íslenska heyrist og sjáist, líka á samfélagsmiðlum
– hvetja nemendur til þátttöku og hjálpa til við að kynna samkeppnina, til dæmis með því að deila kynningarefni á miðlum skóla og frístundastarfs eða hengja upp plaköt
– nýta efniviðinn í starfi skóla, félagsmiðstöðva og/eða félagslífs nemenda
– muna að íslenska er alls konar og á alltaf við — við eigum hana saman
Frekari upplýsingar má finna hér.