fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Hannesarholt opnar eftir árshlé eftir rausnarlegt framlag frá New York – Friðrik V. með veitingareksturinn

Fókus
Fimmtudaginn 29. september 2022 10:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningarsetrið Hannesarholt á Grundarstíg 10 í Reykjavík verður opnað aftur laugardaginn 1.október, eftir að hafa verið lokað í rúmt ár. Sjálfseignastofnunin hóf starfsemi árið 2012 og hefur reksturinn verið fjármagnaður af stofnendum Hannesarholts, Ragnheiði Jónu Jónsdóttur og Arnóri Víkingssyni, með stuðningi hollvina og hollustu einstaklinga, fyrirtækja, lista- og fræðimanna. Stofnunin hefur aldrei notið opinberra rekstrarstyrkja. Stefnt var að því að tryggja reksturinn til framtíðar með samstarfssamningi við stjórnvöld og hafa viðræður þess efnis staðið yfir í hátt í tvö ár, en af honum varð ekki.

Nú hefur rausnarlegur stuðningur Anna-Maria & Stephen Kellen góðgerðarsjóðsins frá New York gert Hannesarholti kleift að halda rekstri hússins áfram. „Við erum sjóðnum og stjórnarformanni hans, Caroline Kellen, ævarandi þakklát, en Caroline er góðvinur Hannesarholts og sýnir nú í verki áhuga og skilning á hugsjónastarfi Hannesarholts,“ segir Ragnheiður.
Með stuðningi Anna-Maria & Stephen Kellen góðgerðarsjóðsins getur Hannesarholt opnað aftur en áfram verður leitað eftir fjárhagslegum stuðningi hér innanlands til að menningarstarfsemi nái aftur að blómstra í Hannesarholti með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi.

Friðrik V. í Hannesarholti

Matreiðslumaðurinn Friðrik V.Hraunfjörð, betur þekktur sem Friðrik fimmti, hefur tekið við veitingarekstri í Hannesarholti og opnar veitingastað í húsinu á sama tíma. „Við höfum haldið upp á Friðrik og hans fólk síðan hann var með veitingastað á Laugavegi og við áttum langar samræður um sjálfbærni og hráefni úr nærumhverfi. Það er sönn ánægja að fá Friðrik til samstarfs í Hannesarholti,” segir Ragnheiður. „Við erum algjörlega á sömu blaðsíðu og það gengur vel að stilla saman strengi innanhúss,” segir Arnheiður Vala rekstrarstjóri.
Hjá Friðriki V. verður boðið upp á fiskrétt og grænkerarétt dagsins í hádeginu og á kvöldin verður í boði almenn veisluþjónusta og matartengdir menningarviðburðir eins og fólk þekkir úr Hannesarholti. „Ég er ánægður að vera kominn af stað aftur og eins og áður í sögufrægu húsi, sem er ekki bara fallegt heldur líka fullt af sál. Ég hef fylgst með Hannesarholti í gegnum tíðina og þau með mér,” segir Friðrik. „Við eigum vel saman.”

Forsvarsmenn Hannesarholts eru afar þakklátir fyrir að löngum óvissutíma sé lokið og hlakkar til að bjóða gesti aftur velkomna í hús. Myndlistarsýning Þórunnar Elísabetar Himneskt er að lifa prýðir veggi veitingastofanna á 1.hæð og verður Hannesarholt öllum opið frá 11-16 þriðjudaga til laugardaga og í tengslum við viðburði á kvöldin.
Aðgengi fyrir fatlaða var nýlega stórbætt, þegar sett var upp pallalyfta við aðalinngang hússins og bætist við þá sem fyrir var í Hljóðbergi, tónleika-og fyrirlestrarsal í bakgarði. Nánari uppýsingar er að finna á Hannesarholt.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Fyrir 2 dögum

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Álfrúnu blöskrar ljótar athugasemdir um pabba sinn og Felix á samfélagsmiðlum

Álfrúnu blöskrar ljótar athugasemdir um pabba sinn og Felix á samfélagsmiðlum