fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Svavari var ekki hugað líf – Núna gefur hann út lag á stórafmælinu sínu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 11. apríl 2022 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svavar Viðarsson fagnar um þessar mundir 50 ára stórafmæli sínu með því að gefa út fyrsta lagið af væntanlegri plötu sinni. Lagið heitir Stjörnur og má hlýða á það í spilurunum hér fyrir neðan.

Svavar greindist nýlega með hjartagalla eftir að hafa fengið blóðtappa í heila og fékk hann þau svör hjá læknum að hann ætti ekki mikla möguleika á að lifa veikindin af. Sem betur fór reyndust þeir spádómar ekki réttir.

Svavar segir svo frá veikindunum og hvernig lagið hans, Stjörnur, kom til hans:

„Ég byrjaði þennan daga eins og alla daga á core-æfingum og teygjum og er á leiðinni í sturtu þegar ég heyri „þyrluhljóð“ í öðru eyranu.  Mig grunaði strax hvað væri að gerast en ég tók mér smá tíma og gerði nokkur test sem ég hafði heyrt að ætti að gera og bentu þau til þess að ég hefði fengið heilablóðfall. Það tók mig smá stund að sætta mig við það og gera plön hvernig ég ætlaði mér að fara í gegnum þetta, ég ákvað strax að ég ætlaði ekki að skilgreina mig sem sjúkling heldur pakkaði ég niður fötum, tölvu, síma og snyrtitösku því ég ætlaði ekki í sjúklingagallann. Lét svo vita að ég hefði fengið heilablóðfall og sjúkrabílinn kom og ég beið eftir honum fyrir utan.

Þegar ég kem á sjúkrahúsið hófust rannsóknir sem að leiddu í ljós blóðtappa í litla heila sem stjórnar tali og samhæfingu hreyfinga og eftir stendur 25% heilaskemmd. Læknarnir voru furðu lostnir þar sem heilasellurnar víruðust upp á nýtt nánast samstundis og var ég um 10 daga að jafna mig. Þar sem engin skýring fannst hvað olli þessu var ég settur í fjögurra daga rannsóknir og þar fannst hjartagalli sem kallast op á milli hjartagátta.

Allir fæðast með þetta op en það grær hjá 80% af fólki. Læknarnir sögðu mér að ef ég hefði ekki verið í svona góðu formi hefði þetta líklegast farið mun verr og ég hefði líklegast dáið. Ég fór svo í aðgerð þann 10. mars þar sem þessu var lokað og hef löngu náð mér að fullu og mun ekki verða meint af heldur betri ef eitthvað er!“

Lagið kom til hans

„Ég ákvað því að halda mínu striki og láta verða að því að gefa út plötu sem kemur öll út í sumar,“ segir Svavar enn fremur:

„Þegar ég var að jafna mig á þeim áföllum sem ég hafði lent í kom þetta lag og texti til mín. Ég fékk Ragnar Z. Guðjónsson til að skrifa eftir þessari hugmynd texta sem táknar stjörnu á hinminum sem einn eða fleiri geta horft til og fundið sömu tengingu við hvar sem þeir eru staddir í heiminum. Ef ég hefði dáið þá væri ég kannski þessi stjarna sem mínir nánustu gæti horft upp til og hugsað til mín og fundið fyrir minni nærveru.“

Það má sannarlega segja að jákvæðni og heilbrigður lífsstíll Svavars hafi komið honum hratt og örugglega í gegnum veikindi og lét hann þetta ekki á sig fá þar sem hann ákvað að gefa út 5 laga EP-plötu sem hann hefur nú verið að vinna að með ýmsu tónlistarfólki hér á landi.

Tónlistaráhugi Svavars kviknaði þegar hann í grunnskóla og fékk að prófa sig áfram í tónkennslu. Í framhaldsskóla kynnist hann Bjarna Ómari og Ragnari Z og saman kepptu þeir í Músíktilraunum þar sem þeir komust í úrslit, seinna um sumarið vinna þeir svo keppnina í Ein Með Öllu á Akureyri þar sem þeir fengu stúdíótíma í verðlaun og má segja að áhuginn hafi þá kviknað fyrir alvöru.

Fyrsta lagið hans Svavars á nýju plötunni er komið út og er dúett-lag sem Bjarni Ómar og Rakel Páls syngja, Ragnar Z. skrifaði textann og Vignir S. Vigfússon sá um upptökustjórn og útsetningu.

Lagið er upplífgandi lag í anda Svavars og hans jákvæða hugarfars sem ber hann langa leið í lífinu.

Hlusta má á lagið í gegnum Spotify eða Youtube-hér að neðan:

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar