fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Fókus

Hinar furðulegu tegundir fælni: Stjórnlaus ótti við nafla og fallegar konur

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Laugardaginn 9. júlí 2022 15:00

Ezra Bailey

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekkert grín að berjast við fælni af einhverjum toga eins og margir þekkja á eigin skinni. Meðal þeirra algengustu er ótti við köngulær, snáka og önnur kvikindi. Aðrir óttast hunda eða ketti og margir þekkja til innilokunarkenndar, lofthræðslu, myrkfælni og ótta við sprautur. Er þá fátt eitt nefnt. 

Það eru skráðar yfir 400 tegundir fælni skráðar og ljóst að það er fátt undir sólu sem ekki getur vakið ótta.

Hér má sjá nokkrar gerðir fælni sem má telja víst að hamli nokkuð lífsgæðum þolenda.

Þeim sem glíma við venustraphobiu er bent á að forðast liðinn Vikan á Instagram í DV. Venustraphobia lýsir sér nefnilega  í stjórnlausum ótta við fallegar konur. Andstæðan er cacophobia sem er hræðsla við ófrítt fólk. Bæði venustraphobia og cacophobia eru með örfáum tegunda fælni sem bundnar eru huglægu mati.

Þessi huggulega kona gæti vakið skelfingu. Mynd/Getty Images

Það leiðir hugann að chorophobia, sem er ótti við að dansa, sem aftur leiðir að geliophobiu sem er ótti við að hlæja. Það er til að mynda unnt að hafa stjórn á þeirri tegund fælni með að umgangast einungis stjórnmálafólk.

Þeir sem stríða við deipnophobiu óttast ekkert meira en að þurfa að spjalla við fólk í matarboðum og náinn ættingi er syngenesophobia sem er hræðsla við ættingja.

Ef viðkomandi þjáist einnig af ablutophobiu er málið sjálfleyst,  enda um að ræða hræðslu við böð og þrifnað, og ætti að því tryggja lausn frá oki veisluhalda.

Stundum er fyllsta ástæða til að óttast ættingja. Mynd/Getty Images

Arachibutyrophobia er merkileg. Um er að ræða óstjórnlega hræðslu við að hnetusmjör festist í munnholi.

Geniophobia er ótti við kinnar, þessar í andlitinu það er að segja, og náskyldar henni eru genuphobia, sem er hræðsla við hné, chirophobia sem hræðsla við hendur og ishicascadiggaphobia sem er óstjórnlegur ótti við olnboga. Omphalophobia er ótti við nafla.

Xanthophobia er ótti við gulan lit, leukophobia við hvítan, melanophobia við svartan og porphyrophobia við fjólubláan. Chromophobia er aftur á móti ótti við alla liti.

Globophobia er hræðsla við blöðrur og mæta þeir sem við hana berjast aldrei í barnafmæli. Þeir sem glíma við linonophobiu eru viti sínu fjær af hræðslu við bönd eða snæri af öllum toga og koumpounophobia er ótti við hnappa. Venustraphobia er ótti við föt. Fælnin getur lýst sér í ótta við einstakar gerðir fata en í alvarlegustu tilfellunum kjósa þolendur frekar að vera berrassaðir en að þolast við í nokkurri flík.

Hippopotomonstrosesquippedaliophobia er að sjálfsögðu djúpstæður ótti við löng orð. Það er einnig lengsta orð enskrar tungu.

Það er margt hætt að óttast. Mynd/Getty Images

Heliphobia er hræðsla við sól og ættu þeir sem þjakaður eru að vera öruggari hér á eyjunni í norðri en víða annars staðar. Slíkt á aftur á móti ekki við um ombrophobiu sem er hræðsla við rigningu.

Neophobia er hræðsla við allt nýtt, hvort sem um er að ræða upplifun eða hlut, og plutophobia er ótti við peninga. Við vinnslu greinarinnar fundust ekki upplýsingar um hvort hræðslan næði einnig til kreditkorta eða jafnvel gjafakorta.

Chaetophobia er ótti við hár. Þeir sem þjást af chaetophobiu snerta oft ekki hár sitt, hvorki þvo það né greiða og fara aldrei í klippingu. Sem aftur leiðir til meira hárs sem eðli málsins samkvæmt er ávísun á skelfilegan vítahring. Pogonophobia er þessu náskyld en um er að ræða hræðslu við skegg.

Optophobia er með þeim erfiðustu að eiga við þar sem um er að ræða hræðslu við að opna augun. Þar sem þú ert að lesa þessa grein er næsta öruggt að þú þjáist ekki af optophobiu.

Það má einnig finna tegundir fælni sem auðvelt er að hafa ættingja og vini grunaða um á stundum. Meðal þeirra er trichophobia, sem er ótti við að missa hárið, ergophobiu sem mun vera botnlaus hræðsla við að mæta í vinnu, svo og decidophobiu. Þeir sem stríða við decidophobiu finnst fátt skelfilegra en að þurfa að taka ákvarðanir.

Phobophobia er einstök í sinni röð enda um að ræða fælni við fælni. Um er að ræða fremur opið hugtak sem lýsir sér í ótta við að þróa með sér ótta.

Nomophobia er stjórnlaus ótti við að vera ekki með farsíma. Ástandið mun fara versnandi. Mynd/Getty Images

Það er við hæfi að enda þennan pistil á fælni sem virðist hrjá hvað flesta, hér á landi sem annars staðar. Ekki síst ungmenni.

Nomophobia er stjórnlaus ótti við að skiljast við farsíma sinn og er þolendur með gripinn límdan við lúkurnar.

Sennilega kemur það fæstum á óvart að nomophobia mun vera sú tegund fælni sem er í hvað örustum vexti og fjölgar tilfellum með hverri kynslóð æfóna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“

Glímir við heilaæxli á meðan sonurinn jafnar sig eftir erfiða aðgerð og eiginmaðurinn heyir kosningabaráttu – „Njótið lífsins og verið þakklát fyrir það sem að þið eigið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron

Baltasar Kormákur tryggir sér annað stórverkefni með Charlize Theron
Fókus
Fyrir 5 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“

„Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir konunni minni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala

Mótmælendur segjast hafa falið flöskur með gervipissi á Met Gala