fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fókus

Menningarmálaráðherra Úkraínu gagnrýnir Netflix fyrir rasisma í þáttunum Emily in Paris

Fókus
Mánudaginn 3. janúar 2022 15:33

Skjáskot úr Emily in Paris/Netflix

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Menningarmálaráðherra Úkraínu hefur sent Netflix kvörtun vegna þess að persóna frá Úkraínu er sýnd í neikvæðu ljósi í þáttunum Emily in Paris.

Aðalpersóna þáttanna, Emily, sem leikin er af Lily Collins, er bandarísk en ferðast til Parísar vegna vinnu.

Í nýjustu seríunni fá áhorfendur að kynnast Petru, ungri konu frá Úkraínu, sem stelur úr búð á meðan hún er á ferð um bæinn með Emily.

Menningarmálaráðherrann Oleksandr Tkachenko segir persónu Petru vera móðgandi fyrir þjóð sína. Auk þess að vera þjófur er Petra sögð hafa lítið vit á tísku og sé hrædd um að vera vísað úr landi.

Tkachenko skrifaði á Telegram: „Í þáttunum Emily in Paris sjáum við skopstælingu á konu frá Úkraínu, sem er algjörlega óviðunandi. Það er líka móðgandi. Er það svona sem fólk sér íbúa Úkraínu?“

Ýmsir hafa tekið undir með honum en úkraínski leikstjórinn Natalka Yakymovych er þessu ekki sammála. „Þannig að í sjónvarpsseríum mega persónur sem sýndar eru í neikvæðu ljósi vera allt nema frá Úkraínu? Auðvitað myndum við frekar vilja að hún væri frá Moskvu en maður fær ekki alltaf það sem maður vill,“ segir hann kaldhæðnislega.

Þetta er raunar ekki í fyrsta skipti sem þættirnir eru gagnrýndir fyrir hvernig fólk frá ólíku þjóðerni er birti. Í fyrstu seríunni var hún gagnrýnd í Frakklandi fyrir að sýna steríótýpíska mynd af landi og þjóð. Þar voru Frakkar jafnan sýndir sem ókurteisir, alltaf með beret húfur og mikiir framhjáhaldarar.

Í nýju seríunni er einnig fjallað um Alfie, sem er steríótýpískur Breti sem er alltaf á pöbbnum að drekka bjór og horfa á fótbolta.

Darren Star, framleiðandi þáttanna, varði fyrstu seríuna og sagði að hann bæðist ekki afsökunar á að sýna París í gegn um einhverja glamúr linsu. Svona hefði hann einfaldlega upplifað París þegar hann kom þangað sjálfur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“

Fertugsafmælisferð Guðbjargar breyttist í martröð: Kom að kærastanum með annarri konu sem réðst á hana – „Síðan henti hann mér í rúmið og misnotaði mig kynferðislega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni

Vilhjálmur standi í vegi fyrir sáttum og beri nú sjálfur sök á stöðunni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“

Bennifer sögð í andarslitunum – „Þau stefna í skilnað“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“

Sneri lífinu við eftir vandræðalegt flug til Íslands – „Ég var að leka yfir í næsta sæti“