Karlmaður leitar ráða til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun.
„Ég held ég hafi eyðilagt hjónaband mitt til 25 ára,“ segir maðurinn.
„Eiginkona mín missti vitið og henti mér út þegar hún sá skilaboð sem ég sendi á gamla kærustu. Fyrrverandi kærasta mín hafði nýlega samband við mig í gegnum samfélagsmiðla, fyrir um þremur mánuðum síðan. Við höfum verið að spjalla síðan þá um gamla tíma og núverandi aðstæður okkar.“
Maðurinn segir að samskiptin hefðu verið saklaus þar til nýlega. „Meðfylgjandi síðustu skilaboðunum frá henni var mynd af henni þar sem hún er ber að ofan. Heimskulega ákvað ég að senda henni mynd af mér, nöktum að neðan,“ segir maðurinn og viðurkennir að þetta hefði aðallega snúist um að fá athygli. „Sem ég var ekki að fá frá eiginkonu minni.“
Maðurinn er 58 ára og eiginkona hans 56 ára. „Ég elska hana og sakna hennar svo mikið. Ég vona svo innilega að hún fyrirgefi mér og við getum farið aftur í fyrra horf.“
„Ég er viss um að þú ert niðurbrotin en eiginkona þín er það einnig og skaðinn er skeður. Það er þess virði að reyna að fá hana til að skilja hversu mikið þú sérð eftir þessu.
Þetta voru mistök og þú varst viðkvæmur fyrir athyglinni, sérstaklega þar sem þér finnst þú ekki fá næga frá eiginkonu þinni.
Ef hún samþykkir að taka við þér aftur þá verður þú að standa við loforð þín um að gera þetta aldrei aftur.“