fbpx
Þriðjudagur 30.apríl 2024
Fókus

Þegar kynlífið breytist í harmleik – Árás ljóns, kæfandi brjóst og fullnæging dauðans

Fókus
Mánudaginn 6. september 2021 22:00

Samsett mynd

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sjá ekki allir mikið orsakasamhengi á milli kynlífs og dauða, en eflaust hugsa sér margir að gott væri að deyja í miðjum klíðum. The Sun tók saman nokkur dæmi um slíka dauðdaga, en þeir eru líklega ekki eins ástríðufullir og draumkenndir eins og marga myndi gruna. Hér má lesa um nokkur þessara dæma:

Límdi á sér typpið

Á dögunum var greint frá því að maður í Indlandi hafi notað lím til að loka fyrir þvagrásina sína. Hann hafi sem sagt límt getnaðarliminn sinn saman, í því skyni að það myndi virka sem getnaðarvörn. Hann lést á hóteli í Gujarat vegna líffærabilunnar, sem kom til vegna límsins í limnum.

Fullnæging dauðans

Sjálf fullnægingin getur verið lífshættuleg. 35 ára gamall maður var fórnarlamb hennar í Malaví á síðasta ári, þegar hann fékk einhverskonar ofsafullnægingu. Maðurinn hafði heimsótt vændiskonu, og þar fékk hann fullnægingu sem varð til þess að æðar í heilanum hans skemmdust.

Lögreglan í Malaví staðfesti í kjölfarið að engin væri ákærður vegna málsins, enda hafi hann dáið af náttúrulegum orsökum.

Ljón drap kynlífið

Það getur líka verið hættulegt að stunda kynlíf utandyra, sérstaklega ef að hættuleg dýr eru í grennd. Árið 2013 greindu miðlar í Simbabve frá slíku atviki, en par sem stundaði kynlíf í runna urðu fórnarlömb ljóns. Ljónið drap konu, en karlkyns elskhugi hennar komst undan.

Fram kom að hann hafi hlaupið frá vettvangi og gert lögreglu viðvart, klæddur í ekkert nema smokk. Ljónið var síðan drepið ásamt öðrum mannætuljónum.

Viagra drepur

Árið 2016 lést 54 ára gamall breskur ferðamaður í Taílandi eftir að hann notaði Viagra til að stunda kynlíf með vændiskonu. Hann er talinn hafa lokið sér af, farið inn á baðherbergi, og fengið hjartaáfall og látið lífið. Talið er að Viagraið hafi orðið honum að bana.

Svipaður dauðdagi átti sér stað í Taílandi í fyrra þegar maður lést eftir að hafa tekið lyfjakokteil sem innihélt meðal annars Viagra. Sá tók þátt í orgíu á hótelherbergi, en lögregla sagði mikið kynlíf hafa orðið honum að bana, og að ekkert grunsamlegt hafi verið á seiði. Þó tók lögregla fram að dauðdaginn væri skammarlegur fyrir manninn og fjölskyldu hans.

Harmleikur í sæðisbanka

23 ára gamall maður lést árið 2012, eftir að hann fékk hjartaáfall í sæðisbanka í Wuhan-borg í Kína. Hann virðist hafa reynt of mikið á sig, en hann hafði heimsótt bankann fjórum sinnum á tíu dögum. Andlát hans kom í ljós þegar starfsfólk bankans byrjaði að hafa áhyggjur af því hvað maðurinn væri lengi í klefa í næði, en þá hafði hann verið þar í tvo tíma.

Fjölskylda mannsins fór í mál við sæðisbankann, og vildi meina að bankinn væri ábyrgur fyrir dauða mannsins. Niðurstaðan var þó sú að það hafi verið á ábyrgð mannsins að fara sjálfur í sæðisbankann.

Lögregluþjónninn sem lést í trekant

Árið 2009 lést lögregluþjónn í Bandaríkjunum er hann fékk hjartaáfall á meðan hann var í trekant. Maðurinn var giftur, en hann var að stunda kynlíf með annari konu og karli á hótelherbergi í Atlanta er hann skyndilega féll kylliflatur í jörðina.

Eiginkona mannsins fór í mál við lækni eiginmanns síns, og sakaði hann um að hafa ekki varað manninn við því að stunda kynlíf. Hún vann málið og fékk meira en þrjár milljónir bandaríkjadala frá lækninum.

Kæfandi brjóst

Brjóst geta verið hættulegri en margir halda. Árið 2013 lést maður í Washington-fylki Bandaríkjanna á meðan hann stundaði kynlíf. Elskhugi mannsins sagðist ekki vita hvernig maðurinn hafi látið lífið, en vitni sagðist hafa séð konuna kæfa manninn með brjóstunum sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sjaldséð sjón: Unglingsdætur Nicole Kidman og Keith Urban mættu með foreldrunum

Sjaldséð sjón: Unglingsdætur Nicole Kidman og Keith Urban mættu með foreldrunum
Fókus
Í gær

Linda Pé opnar sig um erfiðasta tímabil ævi hennar – „Ég var reið og bitur mjög lengi“

Linda Pé opnar sig um erfiðasta tímabil ævi hennar – „Ég var reið og bitur mjög lengi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Lét sig hverfa ein og berfætt á Ítalíu – „Þegar ég skoða myndir af mér á þessum tíma þá sést alveg greinilega að ég er mjög veik“

Lét sig hverfa ein og berfætt á Ítalíu – „Þegar ég skoða myndir af mér á þessum tíma þá sést alveg greinilega að ég er mjög veik“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“

Nýr veruleiki blasir við Láru eftir aflimanir – „Stundum getur útlitið orðið of svart, stundum er ekki hægt að snúa til baka“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór

Sjaldséð sjón – Börn Matthew McConaughey orðin svo stór
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“