fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Ég vaknaði þrisvar í nótt með brjóstsviða og það var bara kvíði við að koma hingað og tala við þig“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 20. apríl 2021 11:30

Óttar Guðmundsson, geðlæknir, í Fossvogskirkjugarði þar sem foreldrar hans hvíla. Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óttar Guðmundsson, geðlæknir er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Í bókinni „Hetjur og Hugarvíl“ skoðar Óttar geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum. Hann segir frá þeirri bók í þættinum.

„Ég hef eiginlega verið Íslendingasagna-nörd síðan ég var barn. En það sem er alltaf mórallinn í þessum bókum mínum, að maðurinn breytist ekki neitt. Við erum alltaf að fást við sama manninn, sömu hvatir, langanir og þrár. Maðurinn er ekkert gáfaðri í dag en hann var fyrir þúsund árum og hann er alveg eins, jafn miskunnarlaus, hégómafullur og afbrýðissamur og svo framvegis. Eins og til dæmis Sturla Sighvatsson, sem er skærasta stjarnan i Sturlungu, það er alveg hægt að sjá fyrir sér hvernig hann væri í dag. Ef hann væri hérna í viðtali hjá þér gæti ég nokkurn veginn sagt þér hvernig hann væri. Hann myndi vera óöruggur, en sjálfmiðaður, en hann myndi bera sig vel og stúlkurnar hérna frammi myndu falla í stafi af því að hann var svo fagur og glæsilegur, en samt óöruggur innst inni. Hann átti í miklum erfiðleikum með sjálfsmyndina og væri í enn meiri vandræðum í dag. Hann væri líklega í fjölmiðlabransanum eða að selja bíla.

Breytti lífi sínu

Óttar breytti öllu í lífi sínu árið 1985, þegar hann hætti að drekka, eftir að hafa verið kominn í ógöngur.

„Ég kem heim frá Svíþjóð árið 1984 og hætti að drekka sjálfur 1985. Ég var kominn í ógöngur með mína drykkju og alls konar vesen sem fylgdi henni. Það var ekki auðvelt á þeim tíma að vera læknir og viðurkenna að maður ætti við áfengisvandamál að stríða. En ég fór í meðferð og breytti öllu mínu lífi í kjölfarið á því. Fram að því hafði ég aldrei getað fest mig í neinu og var rótlaus og drykkjan hefur örugglega haft mikið með það að gera. En svo byrjaði ég að drekka aftur eftir að hafa verið edrú í 12 ár. Þá hafði ég misst fótana og það var áfall að horfast í augu við það. Það tók nokkur ár að komast á beinu brautina og núna hef ég verið laus við áfengi í 15 ár.“

Eftir að hafa unnið í sínum áfengisvanda starfaði Óttar sjálfur um árabil við áfengismeðferðir og hefur kynnt sér mjög vel áfengismenningu Íslendinga í gegnum tíðina.

„Það sem hefur alltaf einkennt áfengismenningu Íslendinga var að drekka mjög mikið þegar menn drukku. Þetta byrjaði strax og áfengi var flutt til landsins og fólk var að kaupa þetta þegar kaupskipin komu. Þannig að það var til mikið áfengi í stuttan tíma og þá var mikið drukkið. Það er endalaust af sögum af bændum sem drukku mikið og urðu úti og annað slíkt. Þannig að áfengismenningin hér var alltaf þannig að fólk varð mjög ölvað þegar áfengi var í boði. Sýslumenn, prestar og bændur urðu oft mjög fullir og fóru að slást og gerðu alls kyns skandala. Svo var reynt að minnka neysluna með því að hafa fáar búðir með fáum tegundum og svo komu bannárin og svo bjórleysið. Þannig að það var alltaf verið að minnka heildarneysluna og við vorum alveg fram undir 1990 með mjög lága heildarneyslu á áfengi miðað við aðrar Evrópuþjóðir. Þess vegna hafa heilsufarsvandamál í gegnum tíðina verið öðruvísi hér en til dæmis í Danmörku. Þar var alltaf meira um lifrarskemmdir, en hér hærri slysatíðni og annað sem tengdist þessum miklu fylleríum.“

Mikilvægt að finna tilgang

Eitt af því sem Óttar leggur mikla áherslu á í allri sinni nálgun á geðlæknisfræði er að fólk finni tilgang.

„Það verður að vera gaman að lífinu og það er orðið mikið vandamál hvað fólki leiðist rosalega mikið og vantar áskoranir. Það eru komin mikil vandamál með hangs og leiðindi af því að fólk veit ekki hvað það á að gera við sig í frítímanum. Línan á milli þess að vera alvarlega þunglyndur og að leiðast allt í lífinu verður að vera skýr. Oft gerum við ekki nægilega mikinn greinarmun þarna á milli. Til dæmis urðu hlaupin að mínum tilgangi eftir að ég hætti að drekka og það bjargaði mér örugglega að finna mig í þeim og eins að sökkva mér í að lesa og skrifa bækur. Þegar ég byrjaði að drekka aftur missti ég út bæði hlaupin og skrifin og ég tengi þetta beint saman. Það er mjög mikilvægt að fólk finni eitthvað sem gefur því tilgang.“

Allir eru kvíðnir

„Allir eru kvíðnir og kvíði sem er ekki óstjórnlegur er í raun drifkraftur og orka. Ég til dæmis vaknaði þrisvar í nótt með brjóstsviða og það var bara kvíði við að koma hingað og tala við þig. Ég get farið að hugsa um verstu myndir og þá fór ég að hugsa að þú myndir draga mig út í umræðu þannig að ég myndi segja eitthvað sem hneykslar alla þjóðina og ég myndi fá alla fjölmiðla upp á móti mér. Þetta er kvíði, en nú er ég kominn hingað og klára af daginn minn þó að ég hafi ekki sofið vel, þannig að ég læt ekki kvíðann stjórna mér. Þar skilur á milli feigs og ófeigs. Ég var mjög kvíðinn í nótt, en svo vaknaði ég og kom hingað og það er munurinn. Ef ég hefði hringt í þig og frestað viðtalinu og svo myndi ég gera það með fleiri hluti þá er kvíðinn að byrja að ná stjórninni,” segir Óttar, sem segist nota bænir og trú þegar kvíðinn reynir að ná stjórninni hjá honum.

„Ég er mjög trúaður. Það kom með AA-samtökunum og bæninni þar. Pabbi var mikill trúleysingi og ég var það líka. Ég fjarlægðist trúnna mjög mikið. En þegar ég lærði að taka bænina inn í lífið varð ég mjög trúaður og er það. Það er mikill hluti af mínu lífi. Ég fer mjög oft að leiði foreldra minna og bið þar. Ég þakka fyrir allt það sem ég hef, þakka fyrir lífið og allt það sem ég hef fengið.”

Kvíðnari vegna Covid

„Þeir sem að eru viðkvæmir fyrir verða enn verri í Covid-faraldrinum. Þeir sem eru kvíðnir fyrir verða enn kvíðnari, þeir sem eru með áráttu- og þráhyggjuhegðun verða verri af því og þeir sem sjá allt í hamförum verða enn meira hamfaramiðaðir. Það hefur komið upp á að fólk fari í Covid-geðrof og fengið ranghugmyndir varðandi Covid. Þetta hefur klárlega haft áhrif á geðheilsu fólks almennt,” segir Óttar, sem segir mannsheilann virka þannig að margir  séu farnir að eiga erfitt með að ímynda sér heiminn eins og hann var fyrir Covid.

„Fólk núna á upp til hópa erfitt með að ímynda sér heiminn eins og hann var. Hann verður líklega aldrei þannig. Þessir helvítis „Zoom-fundir“ munu verða áfram. Ég flutti fyrirlestur um Snorra Sturluson á læknadögum í sal sem vanalega er fullur af fólki en var galtómur. Ég var bara að tala við míkrófón og mér fannst ég bara vera hálf geðveikur. Engin stemmning, engin viðbrögð, engin hlátrasköll. Ég man að ég hugsaði að ef þetta væri komið til að vera væri ekki gaman að halda fyrirlestra framan. Því miður held ég að þetta „Zoom“ umhverfi sé komið til að vera. Það er ekkert sem kemur í staðinn fyrir það að hitta fólk.”

Óttar hefur í áraraðir starfað við að aðstoða fólk með geðsjúkdóma, fíknivanda og fleira. Eftir hann liggur fjöldi bóka, allt frá Ævisögu Megasar yfir í ,,Hetjur og Hugarvíl“, þar sem Óttar skoðar geðsjúkdóma og persónuleikaraskanir helstu hetjanna úr Íslendingasögunum.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=645aSSiyvD4&t=25s

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi