fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

RIFF hlýtur milljóna styrk frá Evrópusambandinu og kemur að stofnun nýrra samtaka

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 22. júní 2020 21:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefnt er að því að Kvikmyndahátíðin RIFF (Reykjavík International Film Festival) verði haldin í 17. sinn í haust.

RIFF hefur hlotið Creative Europe – Media-styrk frá Evrópusambandinu, sem er styrkur veittur til framúrskarandi kvikmyndahátíða í Evrópu og nemur nærri átta milljónum króna.

Þá RIFF einnig orðið stofnaðili nýrra samtaka kvikmyndahátíða; Europa Film Festivals. Þetta kemur fram í fréttabréfi sem DV fékk sent, en þar segir:

„Nýrra og spennandi leiða verður leitað til að sýna myndir á hátíðinni í ár. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, verður haldin að vanda í haust í 17. sinn. Hátíðin fer fram dagana 24. september til 4.október næstkomandi. Hátíðin hlýtur í ár svokallaðan Creative Europe – Media styrk Evrópusambandsins upp á nærri 8 milljónir króna. RIFF er ein af af ríflega 30 kvikmyndahátíðum í Evrópu sem hlutu styrkinn en umsóknir voru um 100. Styrkurinn er lyftistöng fyrir hátíðina og ýmis ákvæði sem fylgja styrkveitingunni er varðar dagskrá og framkvæmd.

„Það er góð viðurkenning á starfi okkar að fá Media styrkinn sem sýnir að við erum á réttri braut. RIFF er á hinu alþjóðlega kvikmyndahátíðarkorti, hún þykir hafa sérstöðu í evrópsku samhengi og fagaðilar fylgjast vel með því sem við erum að gera. Þessa dagana er unnið að því að móta dagskrá hátíðarinnar sem verður að einhverju leyti óhefðbundin í kjölfar ástandsins síðustu mánuða. Fólk vill örugglega geta farið í bíó eftir að hafa verið mikið heima fyrir en við ætlum líka að leita nýrra og spennandi leiða til að sýna myndirnar okkar,“ segir Hrönn Marinósdóttir stjórnandi RIFF.

Dagskrá hátíðarinnar verður kynnt þegar líða tekur á sumarið. Áhugasamir geta fylgst með fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum hátíðarinnar. Hátíðin er einnig styrkt af ríki og borg og ýmsum fyrirtækjum og stofnunum. RIFF er einnig stofnmeðlimur nýrra, evrópskra hagsmunasamtaka kvikmyndahátíða er kallast Europa film festivals. Samtökin eru sett á fót í samvinnu við um tíu aðrar kvikmyndahátíðir m.a. írsku kvikmyndahátíðina Galway Film Fleadh, Geneva International Film Festival í Sviss, Festival de Films CINEMANIA í Kanada, Midnight Sun Film Festival, í Finnlandi, Filmfest. Hamburg í Þýsklandi og hollensku hátíðina Noordelijk Film Festival. Megin tilgangur samtakanna er sá að til verði vettvangur fyrir forsvarsmenn evrópskra kvikmyndahátíða til að deila reynslu, hugmyndum og áætlunum. Einnig verður unnið að stefnumótun er varðar ákvarðanir um álitaefni og sameiginleg málefni og þróaðar leiðir til styðja við undirstöður kvikmyndageirans með ýmsu móti. Þannig skapist einstakt tækifæri til að ljá kvikmyndahátíðum um Evrópu alla sameinaða og sterkari rödd.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar