fbpx
Þriðjudagur 11.nóvember 2025
Fókus

Spurning vikunnar: Hvers saknar þú mest þessa dagana?

Auður Ösp
Laugardaginn 28. mars 2020 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Spurning vikunnar: Hvers saknar þú mest þessa dagana?

Sigríður Sigurðardóttir

„Ég sakna þess mest að hitta fólk og sitja og spjalla við fjölskyldu og vini. Að tala saman gegnum netið eða símann er bara alls ekki það sama þótt það bjargi miklu. Ég get ekki beðið eftir að þetta gangi yfir. Ég held að maður horfi öðrum augum á lífið eftir þetta.“

Ragnheiður Rut Georgsdóttir

„Þetta eru skrítnustu tímar sem flestir ef ekki allir eru að upplifa. Ég fagna öllum þeim aðgerðum sem eru í gangi til þess kæfa þessa veiru sem geisar á alþjóðasamfélaginu. Ég mun sakna þess að geta ekki hitt fólkið mitt í Eyjum um næstkomandi helgi þar sem við ætluðum að eyða tíma saman, pabbi minn hefði orðið sjötugur 25. mars. Ég mun sakna þess að fara ekki á Blúshátíðina á Hilton um páskana. Að öðru leyti er ég bara góð og óska öllum góðs gengis á þessum erfiðu tímum.“

Mynd: Eyþór Árnason

Heiðar Sumarliðason

„Þar sem ég er sjálfstætt starfandi þykir mér ansi gott að byrja daginn á kaffihúsi og vinna aðeins. Þá verður Te og kaffi oftast fyrir valinu, er því í öngum mínum yfir lokun þess.“

Vilborg Davíðsdóttir

„Líf mitt hefur satt að segja tekið litlum breytingum þrátt fyrir þessar reglur og það er ósköp svipað því sem það hefur verið sl. 20 ár því að á meðan ég er að skrifa bók þá er ég og vil vera ein heima að vinna, í friði fyrir öðrum. Ég kemst að vísu ekki í ræktina lengur en bæti það upp með daglegri kraftgöngu um miðbæinn með tónlist í eyrunum. Ég sakna þess helst að geta ekki hitt tæplega ársgamla dótturdóttur en það er lítil fórn til þess að verja nána ættingja með undirliggjandi sjúkdóma fyrir mögulegu smiti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Svona hafði hún efni á „dýra“ Íslandi

Svona hafði hún efni á „dýra“ Íslandi
Fókus
Í gær

Ráðherra á von á barni

Ráðherra á von á barni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ekki gera þetta áður en þú eldar kjúkling: „Bjóða hættunni heim“

Ekki gera þetta áður en þú eldar kjúkling: „Bjóða hættunni heim“
Fókus
Fyrir 2 dögum

8 hlutir sem Sara hefði viljað vita áður en hún hóf heilsuvegferð sína – „Trúðu mér, ef ég gat þetta þá getur þú það líka“

8 hlutir sem Sara hefði viljað vita áður en hún hóf heilsuvegferð sína – „Trúðu mér, ef ég gat þetta þá getur þú það líka“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna

Matvörurnar sem eru hættar í framleiðslu en Íslendingar sakna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Helena hættir við þátttöku í Miss Universe í Tælandi vegna veikinda

Helena hættir við þátttöku í Miss Universe í Tælandi vegna veikinda
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fyrrum hertogaynjan sögð með peningaáhyggjur – Ætlar að afhjúpa leyndarmál konungsfjölskyldunnar

Fyrrum hertogaynjan sögð með peningaáhyggjur – Ætlar að afhjúpa leyndarmál konungsfjölskyldunnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Alveg kominn með nóg af þessu eftir tónleika Mugison og Sinfó: „Svo mikil tilgerð“

Alveg kominn með nóg af þessu eftir tónleika Mugison og Sinfó: „Svo mikil tilgerð“