fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Sex ráð til nýrra grænkera: „Gefðu þér breik“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 31. maí 2019 11:10

Embla Ósk Ásgeirsdóttir. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Embla Ósk Ásgeirsdóttir hefur verið vegan í tæplega tvö ár. Veganismi er henni hjartans mál og heldur hún úti Instagram-síðunni @embla_osk þar sem hún breiðir út boðskap um lífsstílinn. Embla Ósk er gestur í Föstudagsþættinum Fókus og fer yfir ýmis ráð til nýrra grænkera og þeirra sem vilja taka fyrstu skrefin í átt að veganisma.

1. Leitaðu þér upplýsinga

Horfðu á heimildamyndir, þætti, myndbönd, lestu bækur, greinar og rannsóknir og hlustaðu á hlaðvörp.

„Ég fór ég á netið og leitaði „af hverju ég ætti að vera vegan“ og fann einhver YouTube-myndbönd og kynntist uppáhalds vegan aktívistanum mínum James Aspey,“ segir Embla Ósk.

2. Veganæsaðu uppáhaldsmáltíðirnar þínar

„Mér fannst best þegar ég var að byrja, að skrifa niður í A4-skjal hvað ég var að borða yfir daginn. Eins og ég borðaði alltaf jógúrt á morgnana og þannig fannst mér það einfaldast,“ segir Embla Ósk.

„Það er hægt að veganæsa alla sína uppáhaldsrétti. Veganistur.is gera það svo ótrúlega auðvelt fyrir mann, alla þessa hefðbundnu íslensku rétti. Ráð til þeirra sem eru að byrja. Ekki vera hrædd við að prófa nýtt. Það er svo margt í boði. Þegar fólk spyr: hvað ertu að borða? þá svara ég: allt sem þú ert að borða, nema vegan.“

3. Gefðu þér tíma

„Ekki gera of miklar breytingar í einu. Borðaðu enn þá sömu rétti og þú elskar, gerðu þá vegan. Gerðu þetta hægt og rólega og ekki vera of harður við þig. Gefðu þér breik. Þótt þér mistakist þýðir það ekki að þú getir ekki reynt aftur,“ segir Embla Ósk.

„Maður heldur að þetta sé ótrúlega erfitt. Eins og kjöt, mér fannst það mjög gott. Fólk hættir ekki að borða kjöt því það sé vont, eða mjög fáir. Okkur finnst þetta öllum gott, við erum alin upp við þetta. Allavega er það mín reynsla.“

4. Lærðu að lesa innihaldslýsingar

Að læra að lesa innihaldslýsingar er mikilvægt og kemur mjög fljótt. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga:

Mjólk og egg eru ofnæmisvaldar og er alltaf feitletrað í innihaldslýsingu. Mjólkursýra (e. lactic acid), þrátt fyrir nafnið, er vegan.

„Gæti innihaldið snefil af mjólk“ þýðir ekki að varan innihaldi mjólk. Heldur er varan til dæmis framleidd í sömu verksmiðju og vörur með mjólk. Þetta er sett á vörupakkningar fyrir fólk sem er með mikið ofnæmi.“

5. Ekki vera hrædd við soja

Ef þú ert ekki með sojaofnæmi þá hefurðu ekkert að óttast vegna soja.

„Þessi hræðsla með soja. Þegar ég er spurð hvað er í Oumph!? og ég segi soja þá heyri ég: „Það er kvenhormón í því.“ Það er phytoestrogen í soja sem hefur engin áhrif á okkur líkamlega. Það er plöntuhormón og ef þú hefur áhyggjur af kvenhormónum ættirðu að sleppa mjólkurvörum því hún kemur beint úr kvendýri. Þessi kvenhormón koma úr öllum mjólkurvörunum, ekki soja.“

6. Taktu fjölvítamín

Ef þú hefur áhyggjur af því að mæta ekki daglegum vítamínþörfum þegar þú ert að byrja, taktu inn fjölvítamín með B12- og D-vítamíni.

Horfa má á hlaðvarpið í heild sinni hér fyrir neðan:

Þeir sem vilja kynna sér veganisma er bent á eftirfarandi efni:

Heimildamyndir

What The Health – Netflix

Cowspiracy – Netflix

Forks Over Knives – Netflix

Dominion – YouTube

Eartlings – YouTube

Myndbönd á YouTube

Best Speech You‘ll Ever Hear – Gary Yourofsky

Fræðsla: James Aspey, Earthling Ed, Bitesize Vegan

Uppskriftir: Pickup Limes, Cheap Lazy Vegan, Caitlin Shoemaker, Hot For Food.

Hlaðvörp

Food For Thought: The Joy sand Benefits of Living Vegan

Ordinary Vegan Podcast

Bækur

The China Study eftir T. Colin Campbell og Thomas M. Campbell

How Not To Die eftir Michael Greger og Gene Stone.

Eating Animals eftir Jonathan S. Foer

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda