

Íslenska YouTube-stjarnan Hrafna var að deila skemmtilegu myndbandi í gær. Í því slær hún inn enskum frösum í Google Translate sem þýðir frasana yfir á íslensku.
Eins og þeir sem hafa notað Google Translate kannast við þá er forritið langt frá því að vera fullkomið. Hrafna ber saman niðurstöður Google Translate við rétt íslenskt málfar. Eins og setningin „It‘s so cold my fingers could fall off“ er þýdd yfir á íslensku sem „það er svo kalt fingur mínir gætu fallið frá.“
Horfðu á myndbandið hér að neðan.