fbpx
Föstudagur 06.febrúar 2026
Fókus

Salvatore Torrini látinn

Fókus
Föstudaginn 22. nóvember 2019 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Salvatore Torrini, faðir söngkonunnar Emilíönu Torrini, er látinn. Hann lést á heimili sínu síðastliðinn mánudag samkvæmt andlátstilkynningu í Morgunblaðinu í dag.

Veitingahúsafjölskylda

Salvatore var frá Napólí í Ítalíu, fæddur 9. júní árið 1946. „Ég kom hingað til lands út af konu eins og svo margir útlendingar,“ sagði Salvatore í viðtali við Fréttablaðið árið 2002. Hann kom til landsins fyrir tæplega 50 árum.

Salvatore rak vinsæla veitingastaðinn Ítalíu í Reykjavík.

Emilíana lýsti föðurfjölskyldu sinni sem „veitingahúsafjölskyldu“ í viðtali við Morgunblaðið árið 1996.

„Þetta er veitingahúsafjölskylda, ekta ítölsk fjölskylda frá Napólí. Afi var með veitingahús. Tveir bræður pabba áttu veitingastaði í Þýskalandi og mamma og pabbi fóru þangað til að prófa það þegar ég var 10 ára. Við vorum því í tvö ár í ítalskri fjölskyldu í Frankfurt,“ sagði hún.

Fóru til Ítalíu til að skíra hana

Emilíana sagði frá því í viðtali við Vísi árið 2013 að faðir hennar hafi þurft að breyta nafninu sínu þegar hann flutti til Íslands, en á þeim tíma þurftu allir íslenskir ríkisborgarar að heita íslenskum nöfnum.

„Hann er ítalskur og nafninu hans var breytt úr Salvadori Torrini í Davíð Eiríksson. Mamma og pabbi fóru svo til Ítalíu að gefa mér mitt nafn. Þau vildu að ég héti Emilíana í höfuðið á báðum ömmunum mínum, sú íslenska heitir Emilía og sú ítalska Anna. Það var eitthvert vesen með að fá það nafn í gegn hér. Torrini var svo skráð millinafn hjá mér og ég varð Davíðsdóttir. Það var mjög ruglandi fyrir mig þegar ég fékk minn fyrsta passa – Davíðsdóttir,“ sagði Emilíana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Myndaveisla: Fögnuðu nýju sódavatni á Vinnustofu Kjarvals

Myndaveisla: Fögnuðu nýju sódavatni á Vinnustofu Kjarvals
Fókus
Fyrir 4 dögum

Donald Trump hótar Trevor Noah eftir brandara hans á Grammy-hátíðinni

Donald Trump hótar Trevor Noah eftir brandara hans á Grammy-hátíðinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Laufey hlaut Grammyverðlaun aftur!

Laufey hlaut Grammyverðlaun aftur!
Fókus
Fyrir 5 dögum

Milljónir hafa heyrt hann syngja en enginn séð hann – Sturtusöngvari opinberar sig í einstöku atriði

Milljónir hafa heyrt hann syngja en enginn séð hann – Sturtusöngvari opinberar sig í einstöku atriði
Fókus
Fyrir 6 dögum

Tæta í sig heimildarmynd um Melaniu sem fær ævintýralega slæma dóma – „Þetta er hatursglæpur“

Tæta í sig heimildarmynd um Melaniu sem fær ævintýralega slæma dóma – „Þetta er hatursglæpur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Áttaði sig ekki á að þetta myndi gerast þegar hann byrjaði að nota stera – „Ég var ungur og heimskur“

Áttaði sig ekki á að þetta myndi gerast þegar hann byrjaði að nota stera – „Ég var ungur og heimskur“