fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Sigurður og börn hans gefa út lög – „Forréttindi að semja lög með börnunum sínum“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 13. janúar 2019 09:00

Þríeykið VON: Siggi ásamt börnum sínum, Kristjönu og Mikael Mána.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Laufdal er 35 ára gamall, hann ólst upp við tónlist og hefur sjálfur fengist við hana frá því hann var krakki. Í dag eru börn hans komin í tónlistina með föður sínum, en þau hafa þegar gefið út fjögur lög: þrjú frumsamin, auk ábreiðu af einu þekktasta lagi Bubba.

„Verkefnið hófst þannig að dóttir mín, Kristjana, fór í tvígang að gráta þegar hún var hjá mér. Þá var hún sex ára gömul. Ég ræddi málið við mömmu hennar, sem ræddi við skóla dótturinar,“ segir Sigurður.

Niðurstaðan var sú að dóttirin væri með listrænan huga sem væri farinn að flakka eitthvað og samdi Sigurður lag handa henni til að útskýra hvernig það virkar.  „Ég vildi útskýra fyrir henni hvernig listrænn hugur virkar, þannig að ég tók textann út frá henni. Hún var búin að segja við mig að henni fyndist allt lifandi og var farin að telja upp ljósastaura, grindverk og fleira. Þannig að ég tók textann út frá henni og það er lína í laginu hennar út frá því.“

Siggi hefur verið í tónlist frá unga aldri.

Svo vel tókst til að þau fóru í stúdíó til að taka lagið upp. Á leiðinni í stúdíóið, kviknaði áhugi hjá syni Sigurðar, Mikael Mána, sem þá var sjö ára. „Ég sagði að ef hann langaði að vera með þá gætum við gert hvað sem er fyrir hann. Hann langaði að rappa þannig að ég samdi bara annað lag fyrir hann og skrifa textann út frá honum.“

Í kjölfarið sá Sigurður sér leik á borði að búa til fjöllistahóp úr litlu fjölskyldunni þar sem þau fengju öll vettvang til að tjá sig og skapa. „Hópurinn heitir VOR sem stendur fyrir Vitund okkar rís og er settur saman til að skapa og hafa gaman. Þau eru með sitt hvort lagið, síðan er komið lagið Hugsanir þínar, sem söngkonan Brynja Lísa syngur með mér og nú síðast tókum við upp ábreiðu af lagi Bubba, Blindsker.

Bubbi er ánægður með ábreiðuna.

„Mamma var ekki í tónlist sjálf, en hlustaði mikið á Bubba þegar ég var krakki og gerir enn í dag og hann var mikill áhrifavaldur á tónlistina hjá mér. Það var því gaman að gera ábreiðu af lagi hans.“

Sigurður fékkst við tónlistina sjálfur frá því hann var krakki og kom fram á árum áður undir nafninu Siggi Lauf. „Ég spila á gítar og er einnig að vinna á tölvu með synthesisera, ég hef lítið fengist við tónlistina síðan krakkarnir fæddust, en er að komast í gang aftur. Og þetta verkefni með þeim er til gamans gert. Þau hafa rosalega gaman af þessu og sökkva sér með mér í sköpunina og það eru alger forréttindi að fá að gera þetta með börnunum sínum,“ segir Sigurður og segir börn sín hlusta bara á tónlist eins og gerist og gengur, auk þess sem Kristjana leikur sér að því að gera myndbönd í hinum ýmsu öppum.

Sigurður áætlaði sér fjórar vikur í að kenna börnum sínum lögin. „Þau lærðu hins vegar bæði lög og texta samdægurs.“

Engin frekari plön eru um lagaútgáfu hjá Sigurði og börnum hans. „Þetta er bara vettvangur til að tjá sig,“ segir Sigurður og hefur þríeykið ekki komið fram og spilað og ekkert slíkt í undirbúningi. „Þetta er aðallega bara listsköpun, sem átti upphaflega að vera fyrir vini og ættingja, en það tókst svo vel til að ég útbjó rás á YouTube, VOR Vitund okkar rís. Þau vilja bæði skapa og una sér vel í því með mér.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“