
Óskar Guðmundsson rithöfundur hélt útgáfuhóf s.l. mánudag en Bjartur var að gefa út hans aðra bók BLÓÐENGIL sem nú þegar er í 3.sæti yfir mest seldu bækur samkvæmt metsölulista Pennans Eymundsson.

Fyrsta bók Óskars, HILMA hlaut Blóðdropann 2016 sem besta besta glæpasaga ársins og var tilnefnd til Glerlykilsins sem besta glæpasaga á Norðurlöndum.

Fjölmenni mætti í útgáfuhófið og var talað um metaðsókn. Við látum hér fylgja nokkrar myndir frá hófinu þar sem fjölmenni fagnaði áfanganum með Óskari.

