fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026

Að vera eða vera ekki Pia, þar liggur efinn

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 31. júlí 2018 15:05

Pia Kjærsgaard

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sé nú í óða önn að semja yfirlýsingu þar sem fram komi áríðandi upplýsingar um Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins.

 

Piu þarf vart að kynna fyrir landanum eftir hinn margfræga Þingvallafund, en málið hefur undið upp á sig svo um munar og nú er skollið á með ritstríði milli Piu og Guðmundar Andra Thorssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Guðmundur birti grein á vef danska tímaritsins Information, hvar hann segir Piu hafa komið fram við Íslendinga líkt og Stórdani, þar sem hún veitti þingmönnum tilsögn í kurteisi eftir uppákomur þingfundarins á Þingvöllum, hvar veru hennar var mótmælt.

Pia svaraði grein Guðmundar og sakar hann um að ala á sundrungu og segist á engan hátt tengja við að vera Stórdani, enda ekki fædd þegar Danir stjórnuðu Íslendingum.

 

Orðið á götunni er að í yfirlýsingu Steingríms sé að finna útskýringu á því, hvort þessi orð Piu séu skrifuð af persónunni Piu, eða Piu Kjærsgaard, forseta danska þingsins, þar sem ekki liggi alltaf ljóst fyrir í hvoru hlutverkinu hún sé hverju sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn

Pútín breytir reglunum – Nú geta fleiri verið sendir á vígvöllinn
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“

Leikmenn hafi aldrei velt fyrir sér framtíð Þorsteins í starfi – „Það er enginn tími til að ræða hlutina“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum
Brotist inn í kirkju