fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Eyjan
Föstudaginn 20. febrúar 2026 12:12

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, ætlar ekki að sækjast eftir endurráðningu í starf bæjarstjóra eftir kosningarnar í vor. Þetta kemur fram í færslu sem Regína birti á Facebook-síðu sinni nú fyrir stundu.

„Þetta er ekki léttvæg ákvörðun þar sem ég hef átt í ótrúlega góðum samskiptum við oddvitana sem og aðra kjörna fulltrúa á kjörtímabilinu, ekki síst í stórum og krefjandi málum en þar hefur bæjarstjórnin öll náð góðri samstöðu. Ég hef velt því aðeins á undan mér að gefa þessa afstöðu upp en mér finnst það hreinlegast að gera það á þessum tímapunkti þannig að framboðin viti að hverju þau ganga þegar þau stilla upp á lista og hefja undirbúning að kosningum,“ skrifar Regína.

Hún segist líta stolt yfir farin veg og þakklát fyrir að hafa fengið tækifærið að stýra bæjarfélaginu.

„Starf bæjarstjóra er ákveðinn lífsstíll. Þú ert á vaktinni 24/7 og alltaf með augun á boltanum. Ég held að flestir kollega minna viti hvað ég er að tala um. Enda eru launin fín, eins og alþjóð veit. Ég er búin að vera stjórnandi í yfir 30 ár, yfirleitt með mjög mikil mannaforráð. Það er kannski kominn tími á að prófa eitthvað nýtt,“ skrifar Regína.

Hér má lesa færslu hennar í heild sinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu

Þorsteinn Pálsson: Umsögn Landskjörstjórnar með öllu marklaus – Bara spurning um ásetning eða vanþekkingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Þýðir ekkert að æpa og góla hvert á annað – verðum að koma saman og við gerum það yfirleitt á miðjunni
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor

Varaþingmaður Samfylkingarinnar ætlar að kjósa annan flokk í vor
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými

Nína Richter skrifar: Þessi bar er skíðalaust rými
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?

Orðið á götunni: Nú verður horft á olíufélögin – lækkar bensínið þegar heimsmarkaðsverð hrynur?