fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Eyjan

Sigurður Helgi tekst á við nýtt verkefni – „Mikill heiður fyrir mig“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 26. janúar 2026 15:24

Sigurður Helgi Pálmason. Mynd: Facebook.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, var kosinn varaforseti Evrópuráðsþingsins í dag.

„Það er mikill heiður fyrir mig að fá að takast á við þetta verkefni. Ég geri það með auðmýkt og virðingu fyrir þessari merku stofnun.“

Í færslu sinni á Facebook segist Sigurður alltaf hafa reynt að vera hreinskilinn um störf sín sem þingmaður. Í upphafi hafi það tekið hann smá tíma að átta sig á því hvernig hann gæti nýtt starfið á alþjóðlegum vettvangi. Kerfið er flókið og hlutirnir ganga stundum hægt.

„En á þessu rúma ári hef ég komist að því að þrátt fyrir allt flækjustigið er Evrópuráðsþingið nákvæmlega staðurinn þar sem við eigum að vera. Hlutverk Evrópuráðsins er að standa vörð um grundvallarhugsjónir aðildarríkjanna um mannréttindi, lýðræði og réttarríkið og stuðla að efnahagslegum og félagslegum framförum. Öllum aðildarríkjum er skylt að virða grundvallarreglur um frelsi, mannlega reisn og velferð einstaklingsins sem kveðið er á um í mannréttindasáttmála Evrópu og öðrum samningum ráðsins.

Ísland hefur átt aðild að Evrópuráðsþinginu frá árinu 1950 og hér hafa margir merki Alþingismenn og konur starfað með þá hugsjón að við erum hluti af alþjóðasamfélaginu og að okkar rödd er afar mikilvæg.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“

Snorra nóg boðið – „Skólabókasafnið var allt þakið flennistórum regnbogafánum“
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sérstakt eða almennt vanhæfi Landskjörstjórnar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Við erum að tala um valdaframsal þingsins til kjósenda – lýðræði í sinni tærustu mynd
Eyjan
Fyrir 1 viku

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið

Landskjörstjórn hlýtur að segja af sér – stigin inn á hið pólitíska svið