fbpx
Þriðjudagur 03.desember 2024
Eyjan

Guðlaugur gerir grín að því hvað Miðflokksmenn séu gleymnir – Sigmundur gagnrýni nú í raun sín eigin verk

Eyjan
Þriðjudaginn 26. nóvember 2024 09:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, segir sérstakt að fylgjast með vandræðum Miðflokksmannanna hvað varðar áherslur í loftlagsmálum. Þá einkum gagnrýni þeirra á þeim metnaði sem Ísland hafi sýnt í málaflokknum, en þar virðist formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, ekki kannast við sín eigin verk. Guðlaugur skrifaði grein um málið sem birtist í Morgunblaðinu um helgina.

Sigmundur hélt eldræðu um hamfarahlýnun

„All­ir sem starfa í stjórn­mál­um vita að það borg­ar sig að vera þokka­lega að sér í sögu og að minnsta kosti kann­ast við eig­in verk,“ skrifar Guðlaugur og rekur að Ísland hafi tekið þátt í samstarfi um loftlagsmál á vegum Sameinuðu þjóðanna frá upphafi árið 1992 þegar fyrsti samningurinn var gerður. Straumhvörf hafi svo orðið með Parísarsamkomulaginu árið 2015,  þar sem 167 ríki heims samþykktu metnaðarfullt samkomulag á sviði loftlagsmála. Á þeim tíma hafi Ísland aldrei áður verið jafn áberandi á vettvangi loftlagsmála. Þá var Sigmundur Davíð forsætisráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Þeir voru báðir mættir á fundinn í París ásamt öðrum ráðherrum Framsóknarflokksins og 70 manna sendinefnd.

„En for­sæt­is­ráðherra mætti ekki ein­göngu til fund­ar­ins til þess að fylgj­ast með held­ur hélt hann „eldræðu“ til að koma skýr­um skila­boðum frá Íslandi til heims­byggðar­inn­ar. „Það er mín von að hér í Par­ís mun­um við ná sam­komu­lagi sem mun koma í veg fyr­ir ham­fara­hlýn­un; sam­komu­lag von­ar – sam­eini mann­kyn í að tak­ast á við þessa miklu sam­eig­in­legu ógn.“

Hann fór sömu­leiðis yfir þann mikla ár­ang­ur sem Ísland hef­ur náð í orku­skipt­um og bætti við: „En við verðum að gera meira. Rík­is­stjórn­in mín hef­ur ákveðið að fara í aðgerðir til að ná orku­skipt­um í sam­göng­um, fisk­veiðum og land­búnaði í sam­starfi við at­vinnu­lífið sem er nauðsyn­legt til að ná ár­angri.“ Sömu­leiðis lofaði hann fjár­fram­lög­um í Græna lofts­lags­sjóðinn. Í lok­in lýsti hann yfir von um að við vær­um ein­ung­is nokkra daga frá því að ná sögu­legu sam­komu­lagi. „Lofts­lags­samn­ingi sem mun ná til yfir stærsta hluta los­un­ar í heim­in­um og aðstoða aðlög­un og græna framtíð fyr­ir þró­un­ar­ríki.““

Sigmundur vildi senda íslenska raforku til Bretlands

Ekki nóg með það að Ísland hafi þar skrifað undir Parísarsamkomulagið heldur var eins skrifað undir viðbótar samkomulag, metnaðarbandalag um að halda hlýnun jarðar innan við 1,5 gráðu. Nú tali Miðflokksmenn um að ekki hafi verið tekið tillit til íslenskra staðhátta í Kyoto-samkomulaginu sem var undanfari Parísarsamkomulagsins. Það sé þó rangt enda var sérákvæði að finna í samkomulaginu varðandi íslenska stóriðju. Á seinna tímabili samkomulagsins var ákveðið að fara aðra leið og sú ákvörðun var tekin í forsætisráðherratíð Sigmundar.

Guðlaugur rakti líka að árið 2016 hafi þáverandi forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, fundað með Sigmundi og þar ákveðið að setja af stað vinnu við að kanna mögulega raforkutengingu milli landanna í gegnum sæstreng til Bretlands. Þetta telur Guðlaugur að hafi verið fráleit umræða enda þurfi Íslendingar á allri sinni orku að halda fyrir sín eigin orkuviðskipti.

Eru í raun að leggja til hækkun á framlögum til loftlagsmála

Nú gagnrýni Miðflokkurinn kostnað við loftlagsaðgerðir en Guðlaugur bendir á að dregið hafi úr þessum kostnaði. Framlög hafi lækkað um 6 milljarða milli áranna 2023 og 2024 og auk þess voru seldar losunarheimildir fyrir um 16 milljarða sem runnu í ríkiskassann.

„Það er erfitt að átta sig á því hvað Miðflokk­ur­inn vill og að hverju hann stefn­ir. Það er ekki af mörgu að taka þegar kem­ur að þing­mál­um Miðflokks­ins. En þeir hafa þó á hverju þingi lagt fram þings­álykt­un um: stór­efl­ingu inn­lendr­ar mat­væla­fram­leiðslu. Sam­kvæmt henni á að „stór­auka“ stuðning við land­búnað og auka fjár­fram­lög til grein­ar­inn­ar. Þar er m.a. til­greind loðdýra­rækt og hross­a­rækt sem hingað til hef­ur ekki verið gert. En það vek­ur at­hygli að stuðning­ur er að mjög stór­um hluta nokkuð sem hægt er að skil­greina sem lofts­lagsaðgerðir. Styðja á líf­ræna fram­leiðslu, hringrás­ar­hag­kerfið, inn­lenda orku­gjafa til fram­leiðslu, nýta orku­auðlind­irn­ar, inn­lent eldsneyti, skóg­rækt á að stór­auka, o.s.frv. Með öðrum orðum eru þeir að leggja til hækk­un á fram­lög­um til lofts­lags­mála!“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Það sem skiptir máli varðandi ESB-aðild

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Það sem skiptir máli varðandi ESB-aðild
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Um 11% atkvæða gætu dottið niður dauð

Um 11% atkvæða gætu dottið niður dauð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Finnbjörn ómyrkur í máli og varar landsmenn við – Til standi að einkavæða heilbrigðiskerfið og endurtaka kvótafléttuna

Finnbjörn ómyrkur í máli og varar landsmenn við – Til standi að einkavæða heilbrigðiskerfið og endurtaka kvótafléttuna
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Leynivinaleikur leiðtoganna – Hver fékk hvað frá hverjum?

Leynivinaleikur leiðtoganna – Hver fékk hvað frá hverjum?