fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Eyjan

Magnús Árni afhjúpar líflátshótun – Hannes Hólmsteinn: „Þú ert eins og prinsessan á bauninni“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. júní 2026 14:00

Kolbrún Bergþórsdóttir, Magnús Árni Skjöld Magnússon, Björn Bjarnason, Guðni Ágústsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson ásamt nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar. Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Árni Skjöld Magnússon, prófessor við Háskólann á Bifröst og formaður Evrópuhreyfingarinnar, segir að líflátshótanir muni ekki draga kjarkinn úr stuðningsfólki aðildar Íslands að Evrópusambandinu og gerir hann kröfu um að menn sem tala gegn aðild, nefnir hann Björn Bjarnason og Guðni Ágústsson, kveði upp að málflutningur sem innihaldi líflátshótanir og ásakanir um landráð sé ekki í lagi í lýðræðisríki.

Líflátshótunin var færð til bókar undir mynd af nýrri stjórn Evrópuhreyfingarinnar sem birt var á Facebooksíðu samtakanna í gær. Magnús, sem er sjálfur á myndinni, segir í færslu í dag að hann hafi látið fjarlægja athugasemdina án þess að tilkynna hana til samfélagsmiðilsins. „Hugsanlega voru það mistök,“ segir hann.

„En mér finnst það vera skylda mín að vekja athygli á þessu. Hér er verið að hóta fólki sem er ólaunað í stjórn frjálsra íslenskra félagasamtaka og sem er að tjá skoðun á máli sem er engan veginn nálægt einhverjum öfgum í stjórnmálum, heldur hugmynd um að Ísland taki þátt sem fullgildur aðili í fjölþjóðasamtökum sem við höfum meira og minna verið í í 30 ár. Þetta er venjulegt fjölskyldufólk á ýmsum aldri. Svo kemur þessi líflátshótun undir mynd af þeim! Og greinilega einhver hugmynd um samfélag sem tekur fólk af lífi „fyrir gróf landráð“ (ef það leyfir sér að hafa lögmæta og öfgalausa skoðun á alþjóðasamstarfi Íslands).“

Myndin sem um ræðir:

Andstæðingar taki af skarið

Magnús vill að andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, nefnir hann Björn Bjarnason og Guðni Ágústsson, taki af skarið um svona málflutning. Vísar hann svo í pistil Kolbrúnar Bergþórsdóttur á Eyjunni um helgina.

Sjá pistil: Hræðslan við 29. ágúst

„Ég geri eiginlega þá kröfu til þessara manna að þeir taki af skarið og kveði uppúr með það að svona málflutningur sé ekki í lagi í lýðræðisríki.“

Magnús dregur í efa að þessi Hjalti læknir sé raunveruleg persóna en eitthvað sé að baki athugasemdinni:

„Hún verður ekki til í tómarúmi. Og á því bera áberandi einstaklingar ábyrgð, sem þeir verða að axla eins og menn,“ segir hann.

„En svo það sé sagt þá munu líflátshótanir ekki draga kjarkinn úr okkur í Evrópuhreyfingunni og öðrum þeim sem taka slaginn fyrir því að þjóðin segi JÁ við þeim tækifærum sem felast í því að taka aftur upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Áfram Ísland!“

Björn segir þetta furðulegt hjá Magnúsi:

„Þetta er furðuleg grein hjá formanni Evrópuhreyfingarinnar.Ég bendi honum á þetta: bjorn.is/dagbok/hvad-vard-um-rokin og bið hann auk þess að nefna eitt dæmi því til stuðnings að ég ýti undir hræðslu eða öfgar með því sem ég segi um þessi mál.“

Hannes: Dettur ekki í hug að væla opinberlega yfir brjálæðingum

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir í athugasemd að auðvitað sé enginn „Hjalti læknir“ til og færsla Magnúsar sé væl: „Hvers konar rugl er þetta? Þú ert eins og prinsessan á bauninni. Það eru alls konar brjálæðingar, sem reyna að hringja í mig og senda mér nafnlaus bréf og svo framvegis, en mér dettur ekki í hug að væla yfir því opinberlega.“

Magnús svarar honum og segir að það sé skylda hans að vekja athygli á líflátshótunum sem þessum:

„Það er eitthvað á bakvið þetta og ef þú lest ummælin, t.d. sem Kolbrún vitnar í í sinni grein, þá kalla þau fram svona hluti frá fólki sem er í slæmu jafnvægi. Og slíkt fólk getur líka framkvæmt það sem það er að blaðra, eins og dæmi eru því miður um. Á því eiga menn sem vilja láta taka sig alvarlega í opinberri umræðu að axla ábyrgð,“ segir Magnús og bætir við:

„En mér þykir raunverulega leiðinlegt að heyra að þú sitjir undir svona líka Hannes. Ég hef tekið eftir því hvernig er komið fram við þig á samfélagsmiðlum og finnst það ákaflega ómaklegt og oft mjög ósmekklegt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst

Orðið á götunni: Nær 30 prósent þingmanna Sjálfstæðisflokksins farnir – Áslaug Arna sá að staðan hafði veikst
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“

Sigurjón segir liggja fyrir að sjómennirnir eigi að fá meira: „Verulega vandræðalegt fyrir stjórnendur Ísfélagsins“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“

Áslaug Arna hætt: „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað

Fjármálakerfið traust og fasteignaverð hefur lækkað
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins

Albert Jónsson: Viðræður Íslands við ESB yrðu einstakar í sögu sambandsins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum

Orðið á götunni: Skilaboðaskjóða sægreifanna hefur ekki orðið vör við fjárfestingar þeirra í öðrum atvinnugreinum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar

Orðið á götunni: Neikvæðni og útúrsnúningar einkenna nei-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir

Björn Jón skrifar: Meiri öfga í stjórnmálin, takk fyrir