fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Eyjan

Kærir heilbrigðisráðherra og ráðuneytisstjóra til Umboðsmanns Alþingis fyrir óviðunandi framkomu

Eyjan
Fimmtudaginn 22. júní 2023 12:00

Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Markús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, hefur kært Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra fyrir óviðunandi framgöngu gagnvart sér þegar hann hefur bent á að fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum hafi ekki tekið mið af fjölgun íbúa og þróun rekstrarkostnaðar.

Meðal þess sem kvartað er undan til Umboðsmanns er að ráðherra og ráðuneytisstjóri hafi beitt forstjórann óeðlilegum þrýstingi og hann orðið fyrir óviðunandi framkomu er hann sinnti starfsskyldum sínum, sem felast í því að upplýsa um óþægilegar staðreyndir eða gagnrýna stjórnvöld.

Á síðasta ári fékk HSS Deloitte til að greina hvernig fjárframlög á hvern íbúa Suðurnesja hefðu þróast milli áranna 2008 og 2022 með tilliti til þróunar rekstrakostnaðar. Niðurstaðan var sú að framlög hefðu dregist saman um 22 prósent á hvern íbúa fyrir stofnunina í heild og 45 prósent á sjúkrasviði hennar.

Í yfirlýsingu frá forstjóra HSS kemur fram að heilbrigðisráðherra hefði verið varaður við því að ef ekki yrði brugðist við væri samfélaginu á Suðurnesjum stofnað í hætti.

Segir í yfirlýsingunni að þrátt fyrir þetta hafi heilbrigðisráðuneytið ekki brugðist við með fullnægjandi hætti og því hafi forstjóri HSS beðið Deloitte að uppfæra skýrsluna frá því í fyrra með tölum þessa árs. Uppfærð skýrsla staðfesti að fjárframlög á hvern íbúa hafi dregist enn meira saman, eða um 27 prósent fyrir stofnunina í heild og 50 prósent á sjúkrasviði.

Í yfirlýsingu forstjórans segir enn fremur:

„Ég hef sýnt staðfestu gagnvart ráðherra og ráðuneytinu sem hefur fram til þessa aðeins skilað aukafjárveitingum sem ekki hafa dugað til enda er grunnvandi stofnunarinnar enn óleystur. Eftir birtingu uppfærðu skýrslu Deloitte í síðustu viku, fékk ég formlegt bréf frá ráðuneytinu um að miðað við umfang starfsemi slysa- og bráðamóttöku HSS væri sú deild vanfjármögnuð og ráðuneytið hygðist beita sér fyrir að fjárveitingar til hennar yrðu hækkaðar um 300 m.kr. í fjárlögum næsta árs. Með þeirri ákvörðun ráðuneytisins felst ákveðin viðurkenning á að minn málflutningur sé samkvæmur sannleikanum. Hún dugar þó ekki til að leysa vandann nema að hluta.

Verulegur ágreiningur hefur verið milli mín og núverandi heilbrigðisráðherra varðandi skyldur stjórnvalda um fjármögnun á stjórnarskrárvarinni þjónustu við íbúa Suðurnesja. Ég hef því tekið ákvörðun um að óska eftir áliti Umboðsmanns Alþingis á þeim ágreiningsmálum enda hefur verulega skort á efnislegum svörum af hálfu ráðuneytisins við erindum mínum og niðurstöðum skýrslna Deloitte. Þá hef ég einnig ákveðið að óska eftir að Umboðsmaður Alþingis taki afstöðu til framgöngu ráðherra, með þátttöku ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins, gagnvart mér þegar ég sinnti starfsskyldum mínum sem felast í að upplýsa um óþægilegar staðreyndir eða gagnrýna stjórnvöld. Sú framganga er að mínu mati hvorki í samræmi við góða stjórnsýslu né siðareglur ráðherra þar sem ég hef verið beittur óeðlilegum þrýstingi og orðið fyrir óviðunandi framkomu.“

Yfirlýsinguna í heild má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa

Segir kjósendur bera ábyrgð á þeim stjórnmálamönnum sem þeir kjósa
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum