Kona endaði þrisvar sinnum á spítala eftir óhóflegar lyfjaávísanir læknis
FréttirHeilbrigðisráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð í máli læknis sem vildi fá áminningu hnekkt sem hann hafði hlotið frá embætti landlæknis fyrir að ávísa óhóflegu magni lyfja við ADHD til konu, með þeim afleiðingum að hún þurfti að leggjast inn á sjúkrahús í þrjú skipti. Læknirinn var einnig sagður hafa ávísað óhóflega miklu magni slíkra lyfja Lesa meira
Sætti sig ekki við að þurfa borga til að fá sjúkraskrá sína afhenta
FréttirÞann 1. nóvember síðastliðinn kvað heilbrigðisráðuneytið upp úrskurð vegna stjórnsýslukæru einstaklings sem var lögð fram vegna gjalds sem Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins tók fyrir að afhenda lögmanni viðkomandi sjúkraskrá hans. Fór kærandinn fram á að gjaldtakan yrði felld niður og að Heilsugæslunni yrði gert að endurgreiða honum. Tók ráðuneytið undir með kærandanum og úrskurðaði að gjaldið væri Lesa meira
Boðið upp á bólusetningar í apótekum
FréttirÍ tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að í samstarfi heilbrigðisráðuneytsins og Lyfju hafi verið undirbúið tilraunaverkefni um bólusetningar í apótekum sem lyfjafræðingar muni annast. Markmiðið er að bæta þjónustu við notendur, auka aðgengi að heilbrigðisþjónustu, létta álagi af heilbrigðisstofnunum og efla hlutverk lyfjafræðinga innan heilbrigðiskerfisins. Samningur um verkefnið er til hálfs árs og snýr að Lesa meira
Kærir heilbrigðisráðherra og ráðuneytisstjóra til Umboðsmanns Alþingis fyrir óviðunandi framkomu
EyjanMarkús Ingólfur Eiríksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, hefur kært Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, og Ástu Valdimarsdóttur, ráðuneytisstjóra fyrir óviðunandi framgöngu gagnvart sér þegar hann hefur bent á að fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum hafi ekki tekið mið af fjölgun íbúa og þróun rekstrarkostnaðar. Meðal þess sem kvartað er undan til Umboðsmanns er að ráðherra og ráðuneytisstjóri Lesa meira
Biðla til fólks um að ljúka sóttkví í sóttvarnarhúsinu
FréttirEins og fram kom í fréttum í gær úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að ólögmætt sé að krefjast þess að fólk, sem kemur til landsins frá skilgreindum áhættusvæðum, fari í fimm daga sóttkví í farsóttarhúsi. Dómurinn úrskurðaði í þremur málum er snúast um lögmæti þess að farþegar voru skyldaðir til að dvelja í farsóttarhúsi. Fimm kærur hafa Lesa meira
Landspítali fær fimm milljóna landsbyggðarstyrk
EyjanVerkefni sem Landspítali vinnur að og felst í þróun tæknilausna til að stuðla að bættu aðgengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu hlaut nýverið fimm milljóna króna styrk af byggðaáætlun Alþingis. Verkefnið snýr annars vegar að beinum samskiptum sjúklinga við sérfræðinga sjúkrahússins og hins vegar að þróun tæknilegra leiða til að skapa skilvirkan og öruggan farveg fyrir ráðgjöf Lesa meira