fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Eyjan

Eva Ýr nýr mannauðsstjóri Alvotech

Eyjan
Miðvikudaginn 31. maí 2023 10:31

Eva Ýr Gunnlaugsdóttir tekur við sem mannauðsstjóri Alvotech sem hefur vaxtið mikið á undanförnum árum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Ýr Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Alvotech. Eva kemur til Alvotech frá Landspítala þar sem hún hefur starfað sem deildarstjóri mannauðsmála síðan í ársbyrjun 2022. Áður starfaði hún í tæp sjö ár við mannauðsmál hjá Össuri og þar áður hjá fjarskiptafyrirtækinu Nova.

Eva er um þessar mundir að ljúka MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er jafnframt með MS gráðu í mannauðsstjórnun og BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í stjórnendamarkþjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.

„Ég er afar spennt fyrir því að taka þátt í uppbyggingu Alvotech og þeirri spennandi vegferð sem fyrirtækið er sannarlega á. Alvotech starfar í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og starfsmannahópurinn er einstaklega fjölbreyttur. Þessari uppbyggingu fylgja skemmtilegar áskoranir og miklir möguleikar. Vaxtartækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf eru tvímælalaust í fyrirtækjum sem byggja á þekkingu og vísindum, þar er einnig um að ræða afar skemmtileg verkefni í mannauðsmálum og ég hlakka til að geta nýtt þekkingu mína og reynslu við úrlausn þeirra,“ segir Eva Ýr.

Sigríður Elín („Ella Sigga“) Guðlaugsdóttir hefur gengt starfi mannauðsstjóra Alvotech undanfarin þrjú ár, en lætur nú af störfum til að sinna öðrum verkefnum. Starfsfólki fyrirtækisins fjölgaði úr 420 í 1020 á þeim tíma. Ella Sigga leiddi innleiðingu verkferla og kerfa á sviði mannauðsmála til að styðja við öran vöxt fyrirtækisins og skráningu þess á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum og á Íslandi. Þá stýrði hún undirbúningi og innleiðingu jafnlaunavottunar og hefur lagt áherslu á að útfæra jafnréttisstefnu fyrir allt starfsfólk óháð búsetu.

„Það var mikill heiður að fá að taka þátt í þessari öru uppbyggingu og umbreytingu. Sérstaklega er ég stolt af árangri okkar við að innleiða skýra áætlun sem festir jafnrétti í sessi og eflir fjölbreytni í starfsmannahópnum. Ég hlakka svo sannarlega til að fylgjast áfram með Alvotech dafna og hafa jákvæð áhrif á samfélagið,“ sagði Ella Sigga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?

Ágúst Borgþór skrifar: Hrausti sjúklingurinn – Erum við að tala niður heilbrigðiskerfið?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum

Bygging á Orkureitnum fær Svansvottun 4 fyrst allra húsa á Norðurlöndunum
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi