fbpx
Laugardagur 03.júní 2023
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Grímsson center

Eyjan
Laugardaginn 20. maí 2023 10:00

Óttar Guðmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árnastofnun sem kennd er við bókasafnarann Árna Magnússon og Veröld eða Hús Vigdísar Finnbogadóttur standa ekki langt frá hvort öðru á háskólalóðinni. Árni hefur alltaf verið umdeildur í Íslandssögunni. Hann safnaði miklu magni af handritum en stór hluti þeirra dýrgripa glataðist í umsjá Árna vegna bruna eða skipsskaða. Sennilega týndi Árni fleiri handritum en hann safnaði svo að lífsverk hans snerist upp í andhverfu sína.

Vigdís er á hinn bóginn óumdeild enda segir stór hluti þjóðarinnar að hún hafi kennt þeim frönsku. Nýrisið hús íslenskunnar ber nafnið Edda í anda Snorra Sturlusonar og Sæmundar fróða. Þrír tengdasynir Snorra og einn stjúpsonur tóku sig saman um að drepa hann haustið 1241. Hann var því ekki sá vinsælasti í fjölskylduboðunum. Sæmundur hefur orðið frægastur fyrir samskipti sín við skrattann.

Það er mikið fagnaðarefni að fljótlega mun bætast við Grimsson center í Vatnsmýrinni utan um lífsverk fyrrum forseta lýðveldisins. Hann var alltaf umdeildur eins og aðrir á svæðinu umkringdur drísildjöflum sem gerðu honum lífið leitt. Stundum hefði hann þurft að búa yfir mætti Sæmundar fróða til að kveða niður smápúka og hrokafulla pistlahöfunda.

Mig dreymdi Egil afa minn Skallagrímsson á dögunum. Hann fór með þessa gömlu vísu Sveins í Elevogum og krafðist þess að hún yrði meitluð í stein við innganginn að Grimsson center á íslensku og ensku.

Ættarsvip af Agli ber hann.
Orðaleikni Grettis sterka.
Spaki Njáll til anda er hann.
Ólafur pá til rausnarverka.

Related to Egill
Outspoken as Grettir
Intelligent as Njall
Elegant as Olafur pá.

Ég kem þessu hér með á framfæri eins og öðrum skilaboðum Egils Skallagrímssonar til þjóðar sinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón skrifar – Silfur Egils og konungar fyrr og nú 

Björn Jón skrifar – Silfur Egils og konungar fyrr og nú 
EyjanFastir pennar
30.04.2023

Björn Jón skrifar – Óstjórn í ríkisfjármálum

Björn Jón skrifar – Óstjórn í ríkisfjármálum
EyjanFastir pennar
29.04.2023

Sigmundur Ernir skrifar: Hagur öfgaaflanna

Sigmundur Ernir skrifar: Hagur öfgaaflanna
EyjanFastir pennar
19.02.2023

Björn Jón skrifar: Liggur vandi stjórnmálanna í menntunarleysi?

Björn Jón skrifar: Liggur vandi stjórnmálanna í menntunarleysi?
EyjanFastir pennar
12.02.2023

Björn Jón skrifar: Mannleg reisn andspænis gervigreind

Björn Jón skrifar: Mannleg reisn andspænis gervigreind
EyjanFastir pennar
15.01.2023

Björn Jón skrifar: Mygla, raki og mismerkilegar stofnanir

Björn Jón skrifar: Mygla, raki og mismerkilegar stofnanir
EyjanFastir pennar
09.01.2023

„Hvað eiga Matilde, Alina og Eva sameiginlegt?“ – Rangfærslur Hildar í Morgunblaðinu vekja athygli

„Hvað eiga Matilde, Alina og Eva sameiginlegt?“ – Rangfærslur Hildar í Morgunblaðinu vekja athygli